Page 1 of 1

Tollur og gjöld

PostPosted: Sun 13. Apr 2003 12:15
by Logi
Veit einhver hvað þarf að borga í toll og önnur gjöld af innfluttum tjónabíl? Og annað, ætli það sé einhver tollamunur á því hvort bíllinn yrði settur á skrá hér eða notaður í varahluti?

PostPosted: Sun 13. Apr 2003 12:52
by Atli Camaro
Það er allir munur á því hvort bílinn er fluttur inn til að fara á skrá hér eða hann á að fara í varahluti!!!

Hringdu bara í Tollstjórann í Reykjavík,þar er fólk sem getur sagt þér allt um þetta og það sem þau segja gildir.Meira vit í því en að hlusta á tröllasögur hér á spjallinu :lol:

PostPosted: Sun 13. Apr 2003 13:01
by Logi
Já ég veit, það er það sem ég ætla að gera. Maður er bara svo stressaður í að fá að vita eitthvað svona strax um leið og manni dettur það í hug. Það er náttúrulega sunnudagur og líklegast ekki vænlegt til árangurs að fara að hringja í tollstjórann núna :)

PostPosted: Mon 14. Apr 2003 00:31
by Atli Camaro
...ég kannast við þetta :wink:

Þegar mér dettur í hug að gera eitthvað vil ég framkvæma strax,helst í gær því þolinmæðin er engin :(

PostPosted: Mon 14. Apr 2003 00:52
by gstuning
Þú getur keypt heilan bíl inn sem varahlut, menn hafa verið að flytja inn heilu Landcruisera boddí með öllu nema dekkjum og bremsum sem varahluti og skrúfað þetta á gamla crúsera,

PostPosted: Mon 14. Apr 2003 23:54
by morgvin
þ.e.a.s. á dekk með bremsum á.

PostPosted: Tue 15. Apr 2003 00:09
by gstuning
Ég meinti nú undirvagnin, :)

PostPosted: Tue 15. Apr 2003 00:29
by morgvin
var nú bara að grínast.