Page 1 of 1
Bmw buffaður í Hafnarfirði

Posted:
Sun 29. Sep 2002 09:04
by zx
Aðfaranótt laugardagsins var BMW að ég held, 745 '96 eða '97 keyrður á staur og svo á vegg í Hafnarfirði, við þetta kvikknaði í bíllnum sem er gjörónýtur !! Ökumaður sem er stúlka sem er grunuð um ölvun ku hafa verið vel á öðru hundraðinu slapp naumlega út úr bílnum, en hún var dregin út af vegfarendum rétt áður enn bíllinn fuðraði upp, bíllin mun hafa verið í eigu kærasta hennar !


Posted:
Sun 29. Sep 2002 10:57
by Djofullinn
Díses! Ég mundi drepa konuna mína ef hún mundi gera þetta við bílinn minn!


Posted:
Sun 29. Sep 2002 11:54
by Guest
A thetta ekki ad vera 740i... eda 750i...


Posted:
Sun 29. Sep 2002 12:11
by Djofullinn
Hvar sástu þetta? Ég hef ekki séð þetta í ninu blaði?

Posted:
Sun 29. Sep 2002 14:06
by zx
getur verið, man ekki týpuna alveg, allavega stór nýlegur BMW, sá þetta þar sem þetta gerðist, við Nóatúnsverslunina í Hafnarfirði

Posted:
Tue 01. Oct 2002 01:58
by Haffi
urg!!! Þetta er ástæðan fyrir því að ég lána ekki kærustunni minni bílinn minn því henni finnst svo gaman að spóla í rigningu segir hún ... og svo þegar ég fór með henni eitt skiptið í rigningu þá var hún í öllum beygjum á 2 hjólum í þvílíku rugl spóli næstum því uppá öllum köntum eins og einhver formúla snillingur! Hún fær bílinn ekki oftar

Þetta var BMW 750ia

Posted:
Wed 02. Oct 2002 18:11
by Vergo
Bíllinn var brúnsanseraður og var skráður á Stáltækni.
Hann var innfluttur 14.6.00 af Gleiður ehf. (veit ekkert hvað það er)
Númerið á honum er/var PJ677
Stelpan sem ók bílnum brotnaði á ökkla og er 22 ára, hún var ódrukkin og bíllinn lenti ekki á vegg heldur engöngu á ljósastaurnum á gatnamótum Flatahraun og Reykjavíkurvegur (fyrir graman Nóatúns búðina)

Posted:
Wed 02. Oct 2002 18:22
by zx
ónei kúturinn minn, stúlkan var sko ekki ódrukinn, að minsta kosti var hún í annarlegu ástandi svo mikið er víst, hvort sem það var af völdum áfengis eða annara vímugjafa !!