bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
RainX eða ekki RainX https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=121 |
Page 1 of 1 |
Author: | Dr. E31 [ Sat 28. Sep 2002 17:22 ] |
Post subject: | RainX eða ekki RainX |
Hvað finnst ykkur? Hoppa þurkúblöðin eða renna þau mjúkt yfir framrúðuna? Vantar álit ykkar. Ekki vera hræddir greiðið atkvæði! |
Author: | gstuning [ Sat 28. Sep 2002 17:59 ] |
Post subject: | |
RainX all the way, Það virka og þær líða yfir rúðunna flott, ég nota ekki rúðuþurkur þegar ég er með rainX, það þarf eiginlega ekki |
Author: | Gunni [ Sat 28. Sep 2002 19:19 ] |
Post subject: | |
þetta er snilldar efni. ég keypti þetta þegar rúðuþurrkurnar biluðu á gamla e30 bílnum mínum og það svínvirkar líka! svo þegar þurrkurnar komust í gang þá runnu þær ljúft yfir rúðuna. ég skellti þessu bara á allar rúðurnar á núverandi bíl mínum og þykir það hressa mjög! |
Author: | iar [ Sun 29. Sep 2002 10:50 ] |
Post subject: | |
Hmm... er ég sá eini sem finnst RainX vont? Það eru nokkur ár (líklega ca. 5 ár) síðan ég notaði það síðast. Það sem pirraði mig mest við það var að þetta dugði frekar stutt og sérstaklega ef eitthvað þurfti að nota rúðuþurrkurnar því RainXið virtist safnast í þurrkublöðin og safna í sig drullu og á endanum gera illt verra. Þetta leiddi til þess að ég þurfti að hreinsa rúðurnar og blöðin mun oftar en venjulega. Jafnvel gótt bón er betra að mínu mati en þó nota ég bara yfirleitt venjulegan rúðuúða sem hefur virkað mjög vel. Kannski RainX hafi eitthvað batnað síðustu árin.. who knows? |
Author: | Kull [ Sun 29. Sep 2002 16:58 ] |
Post subject: | |
Ég prufaði þetta einhverntímann en var ekki nógu ánægður. Kom alltaf svona ský á rúðuna, þurfti að pússa svakalega til að losna við þetta ský. Svo fannst mér endingin ekkert rosalega góð. Mér finnst venjulegt bón bara duga svipað vel. |
Author: | bebecar [ Sun 29. Sep 2002 20:33 ] |
Post subject: | |
Ég var á móti þessu fyrst, þá fannst mér þetta ekki duga nógu vel. En núna þá fylgir maður leiðbeiningunum bara mjög vel og notar þurrkurnar minna og þá er þetta hið besta mál. Líka miklu flottara þegar perlar af öllum bílnum, sérstaklega rúðurnar líka. Ef þurrkurnar hoppa hjá þér þá er það nú líklega út af þurrkunum´sjálfum. |
Author: | Kull [ Sun 29. Sep 2002 20:45 ] |
Post subject: | |
Mínar þurrkur hoppa til og hafa eiginlega alltaf gert það. Samt eru þetta orginal BMW þurrkur sem ég keypri fyrir nokkrum mánuðum. Ætla að prufa að kaupa ný gúmmí í þær og sjá hvort það batnar. Hvaða þurrkur eru menn annars að nota? |
Author: | bebecar [ Sun 29. Sep 2002 20:56 ] |
Post subject: | |
Ég er með þurrkur frá Olís sem eru bara ansi góðar. Og ekki svo dýrar heldur. |
Author: | gstuning [ Sun 29. Sep 2002 21:21 ] |
Post subject: | |
Ég set RainX á þurkurnar líka þá verða þær sleipar og fínar |
Author: | Dr. E31 [ Sun 29. Sep 2002 21:54 ] |
Post subject: | |
Ég nota original BMW þurkur, því að ég fann ekkert annað sem passaði. (Hér á Íslandi). Ástæðan fyrir því að ég spyr um hvort fólk noti RainX er að ég notaði efni um daginn sem heitir "Strip It", sem er eins og gróft tannkrem, það "djúphreinsar" rúðuna og srtipar allri drullu, siliconi, trjákvoðu og svoleiðis ógeði af rúðunni, og líka RainX'ið sem hefur verið á hjá mér, og núna renna þurkurnar létt og hljótt eftir henni en ekki eins og áður, hoppandi og marrandi. Mig langaði bara að fá álit ykkar áður en ég fer að halla RainX út um allt. ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |