bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Kostar spjallið þig peninga? https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=12005 |
Page 1 of 2 |
Author: | IceDev [ Sat 08. Oct 2005 21:04 ] |
Post subject: | Kostar spjallið þig peninga? |
Ég var að velta því fyrir mér Hefðu þið farið í eins miklar breytingar á bílunum ykkar ef það væri ekki fyrir BMWkraft? Ég veit að ég væri ekki líklegast ekki einusinni að aka um á BMW ef að það væri ekki fyrir þetta spjall Skemmtileg pæling |
Author: | ///Matti [ Sat 08. Oct 2005 21:06 ] |
Post subject: | |
Ég var nú orðin vel sýktur áður en ég fann þetta spjall ![]() |
Author: | Kristjan [ Sat 08. Oct 2005 21:08 ] |
Post subject: | |
Sama hér, minn BMW áhugi byrjaði löngu áður en internetið komst í almenna notkun. |
Author: | IceDev [ Sat 08. Oct 2005 21:10 ] |
Post subject: | |
Áhuginn hefur náttúrulega alltaf verið til staðar..... Spjallið var og er hinsvegar án efa olía á eldinn, það get ég sagt þér ![]() |
Author: | ///Matti [ Sat 08. Oct 2005 21:16 ] |
Post subject: | |
Quote: Spjallið var og er hinsvegar án efa olía á eldinn, það get ég sagt þér
Jájá ekki spurning ![]() |
Author: | gunnar [ Sat 08. Oct 2005 21:22 ] |
Post subject: | |
Ég held að ég sé nú gott dæmi um mann sem varð BMW sjúkur af spjallinu.. Ég átti Toyotu Corollu G6 þegar ég byrjaði hér á spjallinu, ég skoðaði og skoða enn hvern einasta þráð og hvert einasta svar á spjallinu, ég þekkji eiginlega alla bílana sem eru í klúbbnum þannig maður er kannski alveg forfallinn ![]() Svo þegar ég fór að taka þátt í spjallinu meðan ég átti toyljótu þá fór ég að horfa meira á bimma á götunum, pæla í breytingum og svoleiðis. Svo keypti ég mér 320IA bílinn, og byrjaði strax að hugsa um breytingar og svona og fór að skoða bílana á kraftinum og hvernig ég gæti breytt honum. Svo núna er bíllinn minn með fjöðrunarkerfi sem ég komst í tæri við á kraftinum, xenon ljósum sem ég komst í tæri við á kraftinum, var með remus kút sem ég keypti á kraftinum... Díses... Heldur betur hvað þið hafið heilaþveginn mann. Og svona smá í endann, ef það eru einhverjir sem eiga sökina á þessu þá verða þeir taldnir hérna upp: Sæmi GStuning Fart Svezel Oskard Alpina Bjarki Stefan325 Dr.E31 Og fleiri og fleiri.. Ég er eiginlega alveg sure á því að ég ætti ekki bmw og væri ekki búinn að breyta honum svona ef ég hefði ekki fundið kraftinn.. Bwhah, ég er farinn að hljóma eins og meðlimur úr Krossinum eða því um verra. |
Author: | Zyklus [ Sat 08. Oct 2005 21:29 ] |
Post subject: | |
Ætli spjallið hafi ekki bara verið „olían á eldinn“ eins og einhver hér fyrir ofan orðaði svo skemmtilega. |
Author: | GunniT [ Sat 08. Oct 2005 21:36 ] |
Post subject: | |
mér var allavega bent á þetta spjall þegar ég keypti minn fyrsta bmw, svo ég gæti reddað mér varahlutum ![]() |
Author: | íbbi_ [ Sat 08. Oct 2005 22:26 ] |
Post subject: | |
ég á öruglega furðulegustu rótina af bmwdellu sme ég veit um.. ég þoldi ekki bmw og hafði ekkert álit á þeim.. síðan þegar ég var að mig minnir 17 ára þá dreymdi mig að ég væri svoleiðis að taka e38 bíl til syndana, þegar ég vaknaði var ég alveg ![]() ![]() |
Author: | Svezel [ Sun 09. Oct 2005 00:03 ] |
Post subject: | |
mig dreymdi blauta drauma um e36 325 í mörg ár áður en ég fékk prófið og ég ætlaði mér alltaf að kaupa slíkan bíl þ.a. bmw dellan kom langt fyrir kraftinn/spjallið. spjallið hefur að sjálfsögðu oft verið olía á eldinn hvað breytingar og bílakaup varðar þ.a. maður er jú auðvitað mun verr haldinn hvað delluna og peningaútlát til bmw varðar nú en áður ![]() |
Author: | oskard [ Sun 09. Oct 2005 00:07 ] |
Post subject: | |
Ég tel mig eiga heiður af slatta af útgjöldum nokkura meðlima hérna ![]() ![]() ![]() |
Author: | bebecar [ Sun 09. Oct 2005 09:23 ] |
Post subject: | |
Ég var svo heppin að eiga E34 M5 þegar spjallið var opnað og taldi nú ekki mikilla breytinga þörf þar... En í mínum huga er ekki NOKKUR vafi á því að virkt og gott tegundar spjall hefur mikil áhrif á viðhorf og áhuga á tegundinni. Spjallið hefur ekki haft áhrif á breytingar hjá mér, þeir verða til af öðrum ástæðum - til dæmis aðstæðum í kringum mig núna sem eru hagstæðar til breytinga. |
Author: | Raggi M5 [ Sun 09. Oct 2005 11:00 ] |
Post subject: | |
Sama hjá mér einsog Ingvari, ég átti M5-inn þegar spjallið byrjaði. En ég fékk MUN meiri áhuga og ÞEKKINGU á BMW eftir að ég byrjaði að eyða Internet tíma mínum hér. Mér þykir bara fáránlegt hvað ég er búinn að læra mikið á þessum tíma sem ég hef verið á spjallinu, sem er bara gott mál. Og ég sé ekki eftir neinni einustu mínútu sem ég hef varið hérna! Takk fyrir mig, og ég vona að þessi frábæri klúbbur og þetta spjallborð verði ódauðlegt! Raggi M5 > Keflavík ![]() |
Author: | IvanAnders [ Sun 09. Oct 2005 11:05 ] |
Post subject: | |
BMW áhugi minn hefur magnast um svona sirka 6-7000% eftir að hafa farið að stunda þetta spjall og það er ekki nokkur vafi að það verður BMW þegar að veskið leyfir (eftir áramót ![]() ![]() |
Author: | gstuning [ Sun 09. Oct 2005 17:24 ] |
Post subject: | |
Ég verð að segja að það voru tvær síður hérna áður sem virkuðu vel á mann www.e30.de sem er enn í gangi og svo www.bmwe30.net síðan, þetta var ´97 þetta er búið að vera ævintýri síðan |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |