Page 1 of 3
Hvað finnst fólki um spjallborðið ?!

Posted:
Sun 01. Sep 2002 19:14
by Gunni
endilega segiði hvað ykkur finnst um þetta, kostir/gallar. þá er auðveldara að gera þetta flawless


Posted:
Sun 01. Sep 2002 19:17
by Djofullinn
Mér finnst þetta mjög flott! Hef reyndar verið hrifnari af þessum oldfashion spjallborðum en þetta venst rosalega vel

Two thumbs up!
Þetta er hraðvirkt og flott.

Posted:
Sun 01. Sep 2002 19:30
by Kull
Þetta er fínt, þurfum bara að fá alla til að skrá sig og fá smá meira spjall í gang.

Posted:
Sun 01. Sep 2002 19:34
by Djofullinn
Já það eru voðalega fáir búnir að skrá sig

Skráning

Posted:
Mon 02. Sep 2002 09:17
by iar
Djofullinn wrote:Já það eru voðalega fáir búnir að skrá sig

Það er kannski spurning að stilla spjallið þannig að fólk geti skoðað spjallþræði án þess að skrá sig en svo til að taka þátt þurfi fólk að skrá sig. Hvað finnst ykkur?

Posted:
Mon 02. Sep 2002 09:35
by Djofullinn
Já það er ekkert vitlaust finnst mér...

Posted:
Mon 02. Sep 2002 10:07
by saemi
Ég er hjartanlega sámmála um að þurfa ekki að skrá sig... reyndar jafnvel bara yfir höfuð að allir geti sett inn hér texta án þess að skrá sig... allavega til að skoða.
Sæmi
Re: Hvað finnst fólki um spjallborðið ?!

Posted:
Mon 02. Sep 2002 11:10
by GauiJul
Sko mér finnst þetta bara tær snilld, það er nú ekkert voða flókið að skrá sig en það mætti alveg vera hægt að lesa án þess að skrá sig en mér finnst samt að marr eigi að þurfa að skrá sig ef marr vill setja eitthvað inn
Kveðja
Gauijul
BMW 750 IAL

Posted:
Mon 02. Sep 2002 11:10
by Svezel
Þetta er svalt, þræl svalt.

Posted:
Mon 02. Sep 2002 20:49
by Guest
saemi wrote:Ég er hjartanlega sámmála um að þurfa ekki að skrá sig... reyndar jafnvel bara yfir höfuð að allir geti sett inn hér texta án þess að skrá sig... allavega til að skoða.
Sæmi
Jæja sæmi, ég fixaði þetta fyrir þig

ég stillti það samt þannig að óskráðir notendur geti bara sett inn texta á almenna umræðu og tilsölu/villkaupa ! kveðja, Gunni

Posted:
Tue 03. Sep 2002 00:51
by saemi
Þakka þér Gunni... og allir hinir sem eru sama sinnis...


Posted:
Tue 03. Sep 2002 13:02
by bebecar
Mér finnst þetta mjög flott, fínt að þurfa ekki alltaf að vera að eyða í pósthólfinu BÖNS af meilum!


Posted:
Wed 04. Sep 2002 11:00
by iar

Væri ekki tilvalið að skipta phpBB lógóinu efst út fyrir BMW-Kraftur lógó? Þó phpBB sé alger topp eðalgræja þá fær það sína auglýsingu neðst á síðunum.

Posted:
Wed 04. Sep 2002 16:27
by Flicker
var einmitt að spá í því sama

Posted:
Thu 10. Jan 2008 00:14
by Brútus
ég er bara mjög ánægður. Núna er ég búinn að fara í gegnum alla þræðina og varð bara að commenta á þann síðasta.
Takk fyrir núna ætla ég að fara að sofa. Tók mér frí í vinnunni í allan dag til að gera þetta. Gamall draumur ræst.
Takk.