Page 1 of 4
Hvenær verður Dynodagur #2 ???

Posted:
Fri 04. Apr 2003 10:20
by GHR
Hvenær verður Dynodagur #2 ???
Mér langar svolítið að fara mæla minn, en tími ekki að borga 7000 kall fyrir það
Eru ekki eitthverjir hérna búnir að gera eitthvað góðgæti við vélina hjá sér og vilja mæla muninn


Posted:
Fri 04. Apr 2003 10:34
by flamatron
Ég segji það, hvenær verður Dyno.
BTW hvað kostaði það síðast.?

Posted:
Fri 04. Apr 2003 10:35
by Guest
flamatron wrote:Ég segji það, hvenær verður Dyno.
BTW hvað kostaði það síðast.?
Minnir að það hafi verið eitthver 3800 kall


Posted:
Fri 04. Apr 2003 11:10
by Gunni
það kostaði 3800 kall fyrir okkar, venjulegt verð er eitthvað í kringum 6000. Tækniþjónustan bauð okkur uppá pizzur og kók, og þetta var alveg hreinasta snilld hjá þeim!
ég held það sé kannski full snemmt að pæla í því alveg strax, eigum við ekki að bíða eftir sumrinu allavega fyrst ?

Posted:
Fri 04. Apr 2003 12:56
by Raggi M5
Það verður fínt að halda dyno um miðjan maí, eða eikkað svoleiðis...

Posted:
Fri 04. Apr 2003 16:28
by Kull
Já, væri til í það. Finnst maí nú full snemmt, kannski í byrjun júlí frekar.

Posted:
Fri 04. Apr 2003 16:40
by Svezel
Kull:
Þú ert með tölvu frá þeim í gstuning er það ekki?

Posted:
Fri 04. Apr 2003 17:29
by Kull
Heh, mætti eiginlega segja það. Langt síðan ég keypti hana en hef ekki ennþá fundið tíma með þeim GST mönnum til að setja hana í. Þegar mar er í fullri vinnu og háskólanámi með þá getur verið erfitt að finna tíma en ætli mar reyni ekki að koma þessu í um páskana.

Posted:
Fri 04. Apr 2003 18:42
by arnib
Hugmyndin með að hafa tvo dyno-daga var að sjálfsögðu til þess að fólk gæti séð mun á bílunum sínum, fyrir og eftir tjúningar!
Ég er ekki að segja að við ættum ekki að hafa annan dag, það eru auðvitað margir sem að tóku ekki þátt seinast og einhverjir nýjir sem vilja dyno-a bílana sína á góðu verði.
Ég er aftur á móti að velta fyrir mér hvort að það séu margir sem eru búnir að breyta setup-inu hjá sér síðan seinast?
Stebbi GST er að klára að setja Túrbó,
Kull verður kominn með piggy back,
en hverjir fleiri hafa verið að breyta til ?

Posted:
Fri 04. Apr 2003 19:26
by Svezel
Var bara að spá hvernig hún virkaði, er að spá að fjárfesta í einni sjálfur.

Posted:
Fri 04. Apr 2003 19:59
by bjahja
Er ekki ráð að bíða eftir sumar-breytingunum og dyno-a síðan?

Posted:
Sat 05. Apr 2003 00:59
by hlynurst
Ætli maður segi ekki pass við dyno eins og seinast... einu sumarbreytingarnar hjá mér voru ný dekk og þar við situr.


Posted:
Sat 05. Apr 2003 01:59
by Kull
Um að gera að nýta sér þetta tilboð ef það býðst aftur. Þá hefuru líka einhverja viðmiðun ef þú ákveður að breyta bílnum eitthvað í framtíðinni og getur séð hvað sú breyting myndi skila. Færð líka fína útprentun af hestafla og togkúrfunni og ert þá viss um að bíllinn er að virka eins og hann á að gera. Ekki eins og við séum að tala um mikinn pening, rétt rúmur hálfur bensíntankur hjá mér


Posted:
Sat 05. Apr 2003 21:06
by flamatron
Er þetta piggy-back að gera eithar kraftaverk,?
Er þetta til á e36?

Posted:
Sat 05. Apr 2003 21:24
by GHR
flamatron wrote:Er þetta piggy-back að gera eithar kraftaverk,?
Er þetta til á e36?
Já, þú getur fengið þetta á þinn!!! Væri örugglega sniðugt fyrir þig.
Héld samt að þetta sé ekki að gera nein kraftaverk

, bara svipað og góður tölvukubbur

nema þarna býðst þér miklu fleiri valmöguleikar