Page 1 of 1
Mótmæli gegn háu eldsneytisverði

Posted:
Thu 29. Sep 2005 09:24
by Porsche-Ísland
Jæja þá er komið að því.
Fyrir Verslunarmanna helgina þá stóð hópur vörubílstjóra fyrir mótmælum út af hækkun á eldsneyti og hvernig skattar á þá höfðu hækkað.
Ákveðið hefur verið að halda önnur slíka mótmæli á laugardaginn kemur og núna á öllum tegundum af farartækjum.
Ástæða þeirra dagsettningu er að þá verður Alþingi sett. Stefnan er að fjölmenna í miðbæinn kl. 12,00 (á hádegi) og keyra þar um á litlum hraða. Tefja þannig fyrir umferð og vekja athyggli á þessu miklu álögum sem settar eru á bíleigendur.
Kannski náum við að tefja fyrir þingmönnum að komast í kirkju þannig að þeir verði að labba.
Best væri að safnast saman á hafnarbakkanum og fara síðan þaðan á rúntinn.
Stöndum nú saman, því þetta er eitthvað sem okkur öllum kemur við.

Posted:
Thu 29. Sep 2005 09:29
by gunnar
úúúú spurning að mæta ef ég verð ekki að jeppast...
Hvernig er það má ég ekki mæta á GtI druslu sem bilar nú líklegast bara þarna niður frá og þarf að ýta henni um allann bæinn


Posted:
Thu 29. Sep 2005 10:19
by Porsche-Ísland
gunnar wrote:úúúú spurning að mæta ef ég verð ekki að jeppast...
Hvernig er það má ég ekki mæta á GtI druslu sem bilar nú líklegast bara þarna niður frá og þarf að ýta henni um allann bæinn

Allt of snemma að fara að jeppanst, of mikil hætta á að skemma eða rífa dekk.
En endilega komdu á GTI inum og þá legg ég mínum bara og ýti þér.

Posted:
Thu 29. Sep 2005 12:11
by Sprangus
Mótvæli gegn háu eldsneytisverði
Er ekki betri hugmynd að mótmæla heldur en væla?
bara spyr sakleysislega...

Re: Mótvæli gegn háu eldsneytisverði

Posted:
Thu 29. Sep 2005 12:19
by Eggert
Porsche-Ísland wrote:Jæja þá er komið að því.
Fyrir Verslunarmanna helgina þá stóð hópur vörubílstjóra fyrir mótmælum út af hækkun á eldsneyti og hvernig skattar á þá höfðu hækkað.
Ákveðið hefur verið að halda önnur slíka mótmæli á laugardaginn kemur og núna á öllum tegundum af farartækjum.
Ástæða þeirra dagsettningu er að þá verður Alþingi sett. Stefnan er að fjölmenna í miðbæinn kl. 12,00 (á hádegi) og keyra þar um á litlum hraða. Tefja þannig fyrir umferð og vekja athyggli á þessu miklu álögum sem settar eru á bíleigendur.
Kannski náum við að tefja fyrir þingmönnum að komast í kirkju þannig að þeir verði að labba.
Best væri að safnast saman á hafnarbakkanum og fara síðan þaðan á rúntinn.
Stöndum nú saman, því þetta er eitthvað sem okkur öllum kemur við.
Já, og væri ekki jafnvel sniðugra að gera eitthvað annað heldur en að rúnta fyrir bensínið sem þið kaupið af þessm glæpamönnum?
Re: Mótvæli gegn háu eldsneytisverði

Posted:
Thu 29. Sep 2005 18:20
by Hemmi
Porsche-Ísland wrote:og keyra þar um á litlum hraða
Setja auglýsingu á elliheimilin, og muna eftir höttunum


Posted:
Thu 29. Sep 2005 20:45
by Tommi Camaro
ég er til hafnarbakkinn , væri alveg til í að ýta bílnum ´minum í gegnum bæinn

Posted:
Thu 29. Sep 2005 21:05
by gunnar
Tommi Camaro wrote:ég er til hafnarbakkinn , væri alveg til í að ýta bílnum ´minum í gegnum bæinn
haha eigum við að koma í kapp ?

Re: Mótvæli gegn háu eldsneytisverði

Posted:
Fri 30. Sep 2005 00:50
by Porsche-Ísland
Eggert wrote:Já, og væri ekki jafnvel sniðugra að gera eitthvað annað heldur en að rúnta fyrir bensínið sem þið kaupið af þessm glæpamönnum?
Síðan hvenær fóru þingmenn að selja bensín?
Re: Mótvæli gegn háu eldsneytisverði

Posted:
Fri 30. Sep 2005 02:37
by Lindemann
Porsche-Ísland wrote:
Síðan hvenær fóru þingmenn að selja bensín?
Maður veit aldrei! allt getur gerst


Posted:
Fri 30. Sep 2005 15:49
by Porsche-Ísland
Á þeim spjallsvæðum sem þetta hefur verið sett inn er samtals búið að skoða þetta 4500 sinnum.
En bara svona til að árétta þá er mæting Lagardaginn 01.10.05 kl. 12,00 á Hafnarbakkanum í Reykjavík.

Posted:
Fri 30. Sep 2005 17:01
by gunnar
Stefni á að mæta á GTI

Bilað inngjafarspjald og læti þannig ég verð rykkjandi þarna hægri vinstri bara


Posted:
Sun 02. Oct 2005 18:07
by Chrome
...það fer að líða að því að manni fari að líða svona þegar það á að fara að dæla...


Posted:
Sun 02. Oct 2005 18:29
by zazou
Já hvernig fór þetta svo?