bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
dough! https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=11800 |
Page 1 of 1 |
Author: | ta [ Thu 22. Sep 2005 01:16 ] |
Post subject: | dough! |
af mbl. Fór í bíltúr Upp komst um norskan bifvélavirkja, sem stóðst ekki freistinguna þegar hann fékk rallbíl til viðgerðar og fór í ökutúr. Upplýsingar, sem geymdar voru í GPS-staðsetningarkerfi bílsins, sýndu að bílnum hafði verið ekið á 180 km hraða. Norska fréttastofan NRK segir að maður nokkur hafi komið með Subaru Impreza WRC rallbíl inn á verkstæði í Kongsberg vestur af Ósló í síðustu viku og beðið um að undirvagninn yrði yfirfarinn. Hafði maðurinn verið að keppa á bílnum og lenti út af veginum. Nokkrum tímum síðar kom maðurinn og sótti bílinn og fékk að vita að allt hefði verið í lagi. En skömmu síðar sá bíleigandinn, að bremsudiskarnir í bílnum voru dökkbláir, sem benti til þess að honum hefði verið ekið mjög hratt. Með því að kanna upplýsingar og hraða, staðsetningar og ökutíma, sem geymdar voru í GPS staðsetningarkerfi bílsins, kom í ljós að bifvélavirkinn hafði skroppið í ökutúr á bílnum og ekið á allt að 180,6 km hraða á vegi þar sem hámarkshraði var 80 km. Lögreglan svipti bifvélavirkjann sem er 21 árs ökuréttindum á meðan málið er rannsakað frekar. Maðurinn gæti einnig átt yfir höfði sér fangelsisdóm. |
Author: | IceDev [ Thu 22. Sep 2005 01:20 ] |
Post subject: | |
Vonum að svona ökuritar séu ekki framtíðin ![]() |
Author: | Eggert [ Thu 22. Sep 2005 01:56 ] |
Post subject: | |
IceDev wrote: Vonum að svona ökuritar séu ekki framtíðin
![]() |
Author: | Logi [ Thu 22. Sep 2005 08:04 ] |
Post subject: | |
![]() ![]() ![]() ![]() |
Author: | gunnar [ Thu 22. Sep 2005 09:29 ] |
Post subject: | |
Bwhahah "réttlætinu náð"... |
Author: | Helgi Joð Bé [ Thu 22. Sep 2005 23:40 ] |
Post subject: | |
Össs... ef ég fengi einhvern svaka rallý bíl í henduranr myndi ég örugglega gera það sama ![]() |
Author: | Helgi M [ Fri 23. Sep 2005 08:23 ] |
Post subject: | |
Hehe bösted marrr ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |