bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Vantar ráðgjöf https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=11522 |
Page 1 of 2 |
Author: | joipalli [ Tue 30. Aug 2005 10:49 ] |
Post subject: | Vantar ráðgjöf |
Það er mánuður síðan ég seldi bílinn minn og fékk hringingu í gær vegna þess að núverandi eigandi hafði brotið stimpilstöng á einum cýlendirnum. Hann er að óska eftir að ég borgi með honum viðgerðina, ég vill frekar kanna hvernig réttur minn er gagnvart svona löguðu. Flokkast þetta undir galla við lausafjársölu? Er brotin stimpilstöng ekki bara einhvað sem brotnar undir gífurlegu álagi, en ekki með tímanum? Með fyrirfram þökk um góð svör Jóhannes Páll |
Author: | oskard [ Tue 30. Aug 2005 11:06 ] |
Post subject: | |
Ætli maður fái ekki bestu svörin hjá lögfræðingum FÍB ? |
Author: | Djofullinn [ Tue 30. Aug 2005 11:10 ] |
Post subject: | |
oskard wrote: Ætli maður fái ekki bestu svörin hjá lögfræðingum FÍB ?
Jú mikið rétt, þeir vita allt um slík mál. |
Author: | anger [ Tue 30. Aug 2005 12:32 ] |
Post subject: | |
pff halfvitar, það bilaði eitthvað i girkassanum minum manuð eftir að eg keypti minn bil sem eg á i dag en ekki kvartaði ég. |
Author: | Porsche-Ísland [ Tue 30. Aug 2005 12:57 ] |
Post subject: | |
Var ekki gert afsal. í þeim stendur yfirleitt að bíllinn sé seldur í því ástandi sem hann er í. Ef það var gert ert þú laus allra mála. |
Author: | saemi [ Tue 30. Aug 2005 13:41 ] |
Post subject: | |
Hvernig bíll og hvernig kaupandi? Stimpilstöng á ekkert að brotna nema við einhverja nauðgun! |
Author: | Helgi M [ Tue 30. Aug 2005 13:45 ] |
Post subject: | |
Það eru eiginlega bara uppá lögfræðing FÍB komið að úrskurða þetta en samkvæmt lögum um bifreiðakaup þá stendur í þar til gerðu afsali ""Ökutækið selst í núverandi ástandi sem kaupandi hefur kynnt sér og sætt sig við, EN seljandi kann að vera ábyrgur gagnvart kaupanda vegna galla samkvæmt almenum reglum"" og mun það teljast undir "leyndur galli" en mín skoðun er að ef að þú kaupir bíl á "söluverði" þá ertu að kaupa bíl sem að er metin á þann pening miðað við ástan hanns er, en auðvitað ef að það er viðgerð á honum uppá fleiri hundruð þúsund þá á söluverðið að minnka miðað við það... En það er bara mín skoðun,, ég mundi tala við lögfræðing FÍB, en ég held reyndar að maður þurfi að vera skráður meðlimur þar og borga þartilgreind félagsgjöld til að fá aðgang að viðtali við lögfræðinginn.. En svo auðvitað ef að hann var að nauðga bílnum þá er þetta honum að kenna mundi ég segja ![]() |
Author: | Leikmaður [ Tue 30. Aug 2005 14:07 ] |
Post subject: | |
..hef nú lent í þessu á báða vegu, þ.e.a.s. að farið sé fram á að ég borgi og ég fór fram á að annar borgaði! Í fyrra skiptið borgaði ég ekki, en í seinna skiptið fékk ég borgað ![]() Þú verður að meta þetta.....það er MJÖG sjaldan sem að það er hægt að neyða þig til að greiða eitt né neitt, nema náttúrulega að þetta hafi verið nýlegur bíll, þeim mun minna ekinn. Líka ef þetta er e-ð sem að þú hefðir mátt vita af, þ.e.a.s. að þú sért að selja bílinn á gráum forsendum, að þú vitir að það þurfi að fara að kíkja á e-ð án þess að láta seljanda vita af. Þegar ég fór fram á að seljandi tæki þátt í kostnaði á bíl sem að ég keypti fyrir rúmum mánuði (á þeim tíma), borgaði bara því að hann var almennilegur. Hefði alveg eins sagt mér að éta skít. Yfirleitt borgar sig aldrei að fara með þetta í hart, nema að þetta sé viðgerð upp á þeim mun meira (mörg hundruðir þúsunda), en eins og ég segji, ef að bíllinn telst ekki ,,nýr-nýlegur" og kaupandi hefði mátt gera sér grein fyrir einhverju viðhaldi á honum...þá verður þú að meta hvað þú vilt gera.... í það skipti sem ég var beðinn um greiðslu hafði ég selt '97 BMW (seldi einhverju stelpu hana), síðan sá ég bílinn nokkrum sinnum í bænum og þá var litli bróðir hennar, eða vinur á bílnum og hann var að taka allvel á bílnum (þó alveg sem að hann þolir). Síðan fékk ég símtal frá stelpunni stuttu seinna eftir kaupin og hún tjáði mér að vatnskassinn hefði farið og fór fram á að ég tæki þátt helming..... Ég sagði henni kurteisislega að mér kæmi það bara sem minnst við þar sem að ég hefði séð bílinn í góðri sveiflu og eflaust hefði það átt stóran þátt í þessu atviki....þó svo að ég viti ekkert hvort ég hafi verið í ,,rétti" þá heyrði ég ekkert meira í henni! |
Author: | oskard [ Tue 30. Aug 2005 14:15 ] |
Post subject: | |
Viltu meina að vatnskassin hafi eyðilagst útaf því að það var tekið á bílnum ? |
Author: | Leikmaður [ Tue 30. Aug 2005 14:17 ] |
Post subject: | |
oskard wrote: Viltu meina að vatnskassin hafi eyðilagst útaf því að það var tekið á bílnum ?
Hvað veit ég ![]() Það eina sem ég vildi var að þurfa ekki taka þátt í viðgerðinni....Ég meina, hugsanlega hefði ég verið liðlegri hefði ég ekki gæjann vera að flengja greyið bílinn. Hefði stelpan ,,proofed-me-wrong" þá hefði ég bara kyngt þvi! En ,,joipalli" hvernig bíll var þetta? |
Author: | gstuning [ Tue 30. Aug 2005 15:22 ] |
Post subject: | |
Leikmaður wrote: ..hef nú lent í þessu á báða vegu, þ.e.a.s. að farið sé fram á að ég borgi og ég fór fram á að annar borgaði!
Í fyrra skiptið borgaði ég ekki, en í seinna skiptið fékk ég borgað ![]() Þú verður að meta þetta.....það er MJÖG sjaldan sem að það er hægt að neyða þig til að greiða eitt né neitt, nema náttúrulega að þetta hafi verið nýlegur bíll, þeim mun minna ekinn. Líka ef þetta er e-ð sem að þú hefðir mátt vita af, þ.e.a.s. að þú sért að selja bílinn á gráum forsendum, að þú vitir að það þurfi að fara að kíkja á e-ð án þess að láta seljanda vita af. Þegar ég fór fram á að seljandi tæki þátt í kostnaði á bíl sem að ég keypti fyrir rúmum mánuði (á þeim tíma), borgaði bara því að hann var almennilegur. Hefði alveg eins sagt mér að éta skít. Yfirleitt borgar sig aldrei að fara með þetta í hart, nema að þetta sé viðgerð upp á þeim mun meira (mörg hundruðir þúsunda), en eins og ég segji, ef að bíllinn telst ekki ,,nýr-nýlegur" og kaupandi hefði mátt gera sér grein fyrir einhverju viðhaldi á honum...þá verður þú að meta hvað þú vilt gera.... í það skipti sem ég var beðinn um greiðslu hafði ég selt '97 BMW (seldi einhverju stelpu hana), síðan sá ég bílinn nokkrum sinnum í bænum og þá var litli bróðir hennar, eða vinur á bílnum og hann var að taka allvel á bílnum (þó alveg sem að hann þolir). Síðan fékk ég símtal frá stelpunni stuttu seinna eftir kaupin og hún tjáði mér að vatnskassinn hefði farið og fór fram á að ég tæki þátt helming..... Ég sagði henni kurteisislega að mér kæmi það bara sem minnst við þar sem að ég hefði séð bílinn í góðri sveiflu og eflaust hefði það átt stóran þátt í þessu atviki....þó svo að ég viti ekkert hvort ég hafi verið í ,,rétti" þá heyrði ég ekkert meira í henni! Að undanskildu því að þegar kaupandi verslar bílinn þá á hann að skoða hann, og þá er hægt að sjá að vatnskassi er orðinn slappur eða ekki, annað með innan í vél og þess háttar sem ekki er hægt að sjá nema leggja enn meira á sig, |
Author: | joipalli [ Tue 30. Aug 2005 15:44 ] |
Post subject: | |
En ,,joipalli" hvernig bíll var þetta?[/quote] Þetta var gamli fiatinn (Fiat Coupe Turbo 20VT 1997) sem ég átti í þrjú ár. Hann var keyrður 100.000 km og ég seldi hann á 735.000 kr, sem er alls ekki mikið miðað við innflutning á sambærilegum bíl. Strákurinn sem keypti hann lét eitthvað fara yfir hann, því á afsalinu er eitthvað kveðið á um ástand bifreiðarinnar. Svo sem olíuleka, vatnsleka og að hann brenndi olíu. Ég er einmitt að fara hringja í hann og láta hann vita að ég vill ekki taka þátt í kostnaðinum. Þó að mér finnist það mjög leiðinlegt. Þegar að stimpilstöng brotnar, hversu mikið tjón er það gróflega? Verkstæðið sem fór yfir hann segir að hún hafi farið í gang en bara gengið á fjórum í stað fimm. Kærar þakkir fyrir snögg og góð svör ![]() |
Author: | Lindemann [ Tue 30. Aug 2005 15:54 ] |
Post subject: | |
ég hélt að bíll gæti aldrei gengið ef það er brotin stimpilstöng ![]() Þó að vissulega geti vélin gengið ekki á öllum, t.d. ef viðkomandi cyl fær ekki neista eða bensín, þá hélt ég að það myndi bara rústa cylinder veggjunum og sveifarásnum ef hún gengur svona..... En hvað veit ég..... |
Author: | Leikmaður [ Tue 30. Aug 2005 16:15 ] |
Post subject: | |
joipalli wrote: En ,,joipalli" hvernig bíll var þetta? Þetta var gamli fiatinn (Fiat Coupe Turbo 20VT 1997) sem ég átti í þrjú ár. Hann var keyrður 100.000 km. Svo sem olíuleka, vatnsleka og að hann brenndi olíu. [/quote] Nú man ég af hverju maður heldur sig við þetta þýska ![]() |
Author: | saemi [ Tue 30. Aug 2005 17:26 ] |
Post subject: | |
Leikmaður wrote: joipalli wrote: En ,,joipalli" hvernig bíll var þetta? Þetta var gamli fiatinn (Fiat Coupe Turbo 20VT 1997) sem ég átti í þrjú ár. Hann var keyrður 100.000 km. Svo sem olíuleka, vatnsleka og að hann brenndi olíu. Nú man ég af hverju maður heldur sig við þetta þýska ![]() Það brotna nú hlutir í þeim líka.... ![]() (þó svo að rafkerfið sé í betra standi) |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |