bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Svona verður e60 að innan.
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=1143
Page 1 of 1

Author:  oskard [ Fri 28. Mar 2003 15:04 ]
Post subject:  Svona verður e60 að innan.

Image

Image

Þarna má sjá I-Drive úr nýju sjöunni.

Þessi framljós fara enþá rosalega í mig en ég held að það
breytist þegar ég sé hana með mínum egin augum, mér
fannst nýja sjöan butt ugly þegar ég sá hana á myndum
fyrst en núna finnst mér hún guuulll falleg :D

Author:  morgvin [ Fri 28. Mar 2003 22:10 ]
Post subject: 

sama hérna og lílegast hjá flestum.

Author:  iar [ Fri 28. Mar 2003 23:14 ]
Post subject: 

Þetta finnst mér alveg gríðarlega smekklegt! Það er þó tvennt sem mér finnst nokkuð áberandi að mætti laga.

Í fyrsta að hafa rúðuhalarana í hurðinni finnst mér afturför. Að hafa þá við skiptinguna eins og í E46 bílnum er alger snilld! Reyndar til að gefa þeim kredit þá virðist þetta vera ofarlega á hurðinni og því líklega nokkuð aðgengilegt. Svo er E60 líka væntanlega slatta breiðari en E46. ;-)

Svo sýnist mér þeir vera hættir að halla miðhluta mælaborðsins (miðstöð og co.) að bílstjóranum. Finnst það góð "örgonomí" að halla því aðeins að ökumanni.

Það er kannski ákveðinn pervertismi og/eða bilun en stundum get ég alveg dáðst að hönnuninni á mælaborðinu, staðsetningu hluta, einfaldleika og almennt umhverfi ökumanns í E46. Þarf að skrifa smá grein og taka myndir við tækifæri. ;-)

En semsagt, ég er líklega ekki rétti maðurinn til að bera E60 og E46 saman enda ekki alveg hlutlaus. :roll:

Author:  arnib [ Sat 29. Mar 2003 02:08 ]
Post subject: 

iar wrote:
... enda ekki alveg hlutlaus. :roll:


Haha :)

Þú ert ekki _alveg_ hlutlaus.

Ég er sammála þér að það sé afturför að færa rúðuhaldarana!
Mér finnst vera mjög "bmw" að hafa þá hjá skiptingunni.
Þessi bíll er samt mjög fínn að innan :)

Author:  íbbi [ Sat 29. Mar 2003 05:15 ]
Post subject: 

mér finnst nú margt mjög flott við bílin.. en mér finnst nokkur atriði skemma hann eins og t.d framljósin.. :? en mig hlakkar til að sjá hann.
innrétingin finnst mér flott... en ég sakna þess að miðjan á mælaborðinu snúi að ökumanni.. mér finnst það alltaf frekar flott og reyndar finnst mér stýrið ekki nógu flott heldur..

en samt ágætis arftaki í þessari jú flottustu línu í heimi 8)

Author:  iar [ Sat 29. Mar 2003 12:39 ]
Post subject:  Re: Svona verður e60 að innan.

oskard wrote:
Þarna má sjá I-Drive úr nýju sjöunni.


Þetta verður samt einfaldari útgáfa af I-Drive með færri valmyndum. Líklega þá mun þægilegri í notkun líka. I-Drive í sjöunni hefur fengið frekar slæma dóma fyrir að vera allt of flókið svo þetta hlýtur bara að vera hið besta mál!

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/