Page 1 of 1
Þrír látnir á árinu...

Posted:
Fri 28. Mar 2003 13:12
by oskard

Posted:
Fri 28. Mar 2003 13:29
by Haffi
EKKI SEGJA MÉR AÐ ÞESSI VÍNRAUÐI SÉ LANCER !!!!!!!!!!!!!!!

Posted:
Fri 28. Mar 2003 13:32
by oskard
Ég á mjög bágt með að sjá einhverja bíltegund úr þessu....


Posted:
Fri 28. Mar 2003 14:31
by saemi
Þetta er ferlegt.
Þetta var áhafnarrúta frá Flugleiðum sem var í þessum árekstri. 2 látnir, en ekki neinn úr rútunni heyrði ég.
Það er nú ekki spurning að það þarf að hafa akreinarnar aðgreindar, óviðunandi að hafa þetta eins og þetta er í dag.
sæmi

Posted:
Fri 28. Mar 2003 14:37
by bjahja
Þetta er svakalegt, spurning hvort fyrstu mánuðurnir hafi bara verið lognið á undan storminumm, vona ekki. *7* 9* 13


Posted:
Fri 28. Mar 2003 14:45
by Guest
hvar gerðist þetta ?

Posted:
Fri 28. Mar 2003 14:57
by oskard
rétt hjá vogunum

Posted:
Fri 28. Mar 2003 16:57
by Halli
þetta er hrikalegt

Posted:
Fri 28. Mar 2003 19:12
by Svezel
Merkilegt að það skuli ekki vera löngu búið að gera Reykjanesbrautina sómasamlega. Ég trúi ekki öðru en allt verði sett á fullt núna þar sem þessi tvö banaslys á árinu gerðust bæði á Reykjanesbrautinni.
Sendi aðstandendum samúðarkveðjur

Posted:
Fri 28. Mar 2003 20:03
by Just
Mjög sorglegt og maður sér núna hversu hættuleg Reykjanesbrautin er. Annars voru þetta Saab og Volvo.


Posted:
Fri 28. Mar 2003 22:14
by morgvin
þetta hefur verið alveg rosalegur hraði shhh....

Posted:
Fri 28. Mar 2003 22:53
by Bjarki
Þeir vilja frekar gera göng fyrir austan þar sem það myndi kosta mörghundruð þúsund á mann ef það ætti að borga þau upp með sömu forsendum og Hvalfjarðargöngin en þrátt fyrir það hversu ótrúlega óhagkvæmar gangaframkvæmdir þetta eru þá á samt ekki kosta neitt í þessi göng.

Posted:
Fri 28. Mar 2003 23:23
by Atli Camaro
Reykjanes brautin er í sjálfu sér ekki svo hættuleg EF varlega er farið!!!
Vandamálið er aðallega að menn geta ekki drullast til að keyra þarna eins og aðstæður leyfa.Ég var að vinna í Vogunum og keyrði þangað á hverjum degi og þá sá ég hvernig menn keyra þarna.Menn eru að taka fram úr í blindbeygjum,á blindhæðum og það í slæmu skyggni.Það þarf að bera virðingu fyrir þessari leið,hún er hættuleg og þess vegna ætti að sýna mikla varkárni,en það gera ekki allir og það eru þeir sem drepa okkur hin


Posted:
Fri 28. Mar 2003 23:26
by Bjarki
Já það er mikið til í því menn eru svo kaldir þegar þeir eru að taka framúr þarna að það er með ólíkindum. Það er eins og þeir átti sig ekki alveg á því hvaða ábyrgð þeir eru að axla með því að aka bíl.