Page 1 of 4

Þekkir einhver þennan?

PostPosted: Thu 27. Mar 2003 08:12
by SkuliSteinn
Veit einhver eitthvað um þennan bíl?
Hvort það sé búið að fara illa með hann eða eitthvað.
Hvað ætti maður að borga fyrir hann?

http://www.bilasolur.is/Main.asp?SHOW=C ... _ID=130151

PostPosted: Thu 27. Mar 2003 08:15
by arnib
Ég veit ekki mikið um hann, en þessi bíll eða einhver álíka (?) hefur verið meira og minna á bílasölum síðan ég fékk áhuga á bílum! :shock:

Ég allavega man eftir honum waaay back!

PostPosted: Thu 27. Mar 2003 08:19
by Djofullinn
Já hann hefur verið rosalega mikið á bílasölum, það hefur líka verið sett svo rosalega mikið á hann, hver helduru að borgi hálfa milljón fyrir að fá spoiler, álfelgur og límmiða með bílnum :D

PostPosted: Thu 27. Mar 2003 10:12
by flamatron
Mér sýnist það vera bara stór spoiler sem er að Boosta upp verðið, hitt er original :? ,.
Hvað meinar hann "stafrænd mælaborð", er það sem telur Km? :lol:

PostPosted: Thu 27. Mar 2003 10:41
by Jói
flamatron wrote:Mér sýnist það vera bara stór spoiler sem er að Boosta upp verðið, hitt er original :? ,.
Hvað meinar hann "stafrænd mælaborð", er það sem telur Km? :lol:


Ég hef séð það oft að Bimmar eru auglýstir með stafrænt mælaborð, oftar en ekki e38 og e39. Ég held líka að þeir eigi við KM mælirinn. :roll: :lol:

PostPosted: Thu 27. Mar 2003 10:45
by Einzi
Já þessi er búinn að vera talsvert á sölum í gegnum tíðina að mig minnir.
Ef þú ert að fara að skoða, tékkaðu þá þar sem afturbrettið og aftursvuntan mætast. Minnir að það hafi verið þessi sem ég var að skoða einhverntíman á sölu þar sem virtist að dekkið hafi eitthvað nartað þarna í og étið festingu og stuff....

-Einzi

PostPosted: Thu 27. Mar 2003 10:48
by Djofullinn
En svo ég sé ekki of neikvæður þá held ég að þetta sé mjög vel með farinn bíll :)

Re: Þekkir einhver þennan?

PostPosted: Thu 27. Mar 2003 11:05
by Jói
SkuliTyson wrote:Veit einhver eitthvað um þennan bíl?
Hvort það sé búið að fara illa með hann eða eitthvað.
Hvað ætti maður að borga fyrir hann?

http://www.bilasolur.is/Main.asp?SHOW=C ... _ID=130151


Mér sýnist þetta vera vel með farinn bíll, hann er hérna í Seljahverfinu rétt hjá mér. Hef séð þennan bíl mjög oft og hann virðist vera vel með farinn. Verðið er náttúrlega of hátt, en miðað við hvað hann hefur verið lengi á skrá, þá er líklegt að það sé hægt að prútta. Það segir næsta skoðun 2004, þannig að líklega er auglýsingin frekar ný. Aksturinn virðist vera venjulegur fyrir 8 ára gamlan bíl. Hann virðist vera mjög vel búinn, með öllu nema leddara. Síðan er hann með stafrænt mælaborð! :wink: Stendur að hann sé með flækjur. Ef þér finnst hann flottur, prófaðu að keyra hann, ef þér lýst ennþá vel á hann þá er bara málið að skella sér á hann, eftir að þú lætur skoða hann auðvitað, sem er algert skilyrði fyrir svona bíl, sérstaklega þegar hann hefur verið á sölu svona lengi. Ætti allaveganna ekki að kosta meira en Golfinn þinn.

PostPosted: Thu 27. Mar 2003 11:13
by Jói
En hvað með þennan? Þessi finnst mér miklu flottari. :)

Image

Blár BMW 325 coupé

Og grænn BMW 325 coupé

PostPosted: Thu 27. Mar 2003 11:37
by GHR
Impetuzinn er virkilega smekklegur!!! Alveg til í að eiga svona bíl 8)

PostPosted: Thu 27. Mar 2003 12:11
by bebecar
Mér finnst þessi coupé bíll sem gesturinn benti á mjög glæsilegur. Alltaf veikur fyrir þessum bílum....

PostPosted: Thu 27. Mar 2003 12:15
by Djofullinn
Bara verst að hann er sjálfskiptur :?

Re: Þekkir einhver þennan?

PostPosted: Thu 27. Mar 2003 13:20
by ///MR HUNG
hann heitir kjartan sem á hann núna og er nýbúinn að kaupa hann og er bílasali á bílamarkaðinum og örugglega til í ýmis skipti ef ég þekki hann rétt.

PostPosted: Thu 27. Mar 2003 14:34
by Bjarki
Djofullinn wrote:Já hann hefur verið rosalega mikið á bílasölum, það hefur líka verið sett svo rosalega mikið á hann, hver helduru að borgi hálfa milljón fyrir að fá spoiler, álfelgur og límmiða með bílnum :D

Hvað er sanngjarnt að borga fyrir svona bíla? Þá er ég að tala um hvað þeir eru að fara á. BGS.is segir 961þ ef ég miða við 15.06.94 en það lækkar líka niður í 694þ ef ég lækka árið niður í '93 og 413þ ef ég lækka árið niður í '92 sem er nú frekar mikil lækkun en þessi reiknivél þeirra er líka bara rugl. Mín ágiskun er 900-1000þ svona eftir ástandi.

PostPosted: Thu 27. Mar 2003 14:54
by Halli
Djofullinn wrote:Bara verst að hann er sjálfskiptur :?

svona svona :lol: