bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Er áhugi hér fyrir að fá remap á bílana? https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=11165 |
Page 1 of 1 |
Author: | iar [ Tue 26. Jul 2005 15:40 ] |
Post subject: | Er áhugi hér fyrir að fá remap á bílana? |
Sælir. Mig langaði að athuga hvort einhverjir hér hafi áhuga á remap-i á bílana sína. Þ.e. OBD-II bíla (flestir ef ekki allir bílar '96 og nýrri eru með OBD-II). Processin felst semsagt í mjög stutu máli í því að fyrst er ECU mappið lesið af bílnum inn á tölvu með þar til gerðu tengi (sem ég er kominn með). Mappið er sent til E-maps í Bretlandi sem breyta og gera eitthvað vúdú ![]() Verð og slíkt er ekki alveg komið á hreint og fer væntanlega eitthvað eftir því hversu margir við verðum. Mér skilst að þetta kosti eitthvað um 20-25þ. og aldrei að vita nema það verði einhver magnafsláttur fyrir meðlimi BMWKrafts. ![]() Aðilinn sem gerir þetta (Simon hjá www.e-maps.co.uk ) fær t.d. mjög góða á e36coupe foruminu. Nánari upplýsingar og dæmi um aflaukningu er að finna á heimasíðu E-Maps. Þar er einnig ágætis FAQ. Kíkið undir Products til að sjá dæmi um hvaða bíla er hægt að fá remap fyrir og tölur yfir ca. aflaukningu sem hægt er að búast við. Hér eru líka upplýsingar: http://www.e36coupe.com/products/Remapp ... apping.htm Látið mig vita í EP eða tölvupósti (iar@pjus.is) ef þið hafið áhuga. Eins ef þið hafið spurningar sem ekki er svarað á þessum vefsíðum skal ég safna þeim saman og koma þeim til Simons. Það þarf svosem ekki að leita lengi á e36coupe foruminu til að finna góðar umsagnir um þennan gaur (kallar sig Chipper á foruminu, hægt að nota leitina á foruminu) en hér er eitt dæmi: http://www.e36coupe.co.uk/forum/viewtopic.php?t=33996 En allavega, sendið mér línu þið sem hafið áhuga og ég tek það saman og athuga hvaða pakkatilboð við getum fengið hjá þeim. Látið fylgja með hvaða bíll er um að ræða, týpu og árgerð og breytingar ef einhverjar eru (loftfilter, pústkerfi osfrv..) Ég kem til með að gera þetta við minn fljótlega og mun mæla fyrir og eftir með GTech til að sjá muninn og mun svo auðvitað pósta því hér. En þangað til væri gott að fá grófa hugmynd um hversu margir hefðu áhuga á þessu. |
Author: | Eggert [ Tue 26. Jul 2005 16:48 ] |
Post subject: | |
Hljómar spennandi, verð að segja. En er þetta ekki nokkuð sem maður græðir á nema maður sé með 2.5 og uppúr? |
Author: | Wolf [ Tue 26. Jul 2005 17:53 ] |
Post subject: | . |
Já, þetta hljómar mjög áhugavert, en ætli þetta myndi gera eitthvað að ráði fyrir M43B16 ? |
Author: | iar [ Tue 26. Jul 2005 18:51 ] |
Post subject: | |
Eggert: Skv. heimasíðu E-maps eru þetta um 14hö og 20Nm sem þú færð ofan á 150hö og 190Nm. Wolf: Er M43B16 nokkuð OBD-II vél? Er þetta ekki E36 316i vélin? ( http://www.bmwworld.com/engines/4cyl.htm ). Ef þetta er ekki OBD-II þá er þetta dæmi ekki option. Ef þú vilt að ég tékki betur á því, sendu mér VIN númerið og ég skal spyrja þá. |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |