bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Mætti tveimur Bimmum á rauðum nr https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=10926 |
Page 1 of 2 |
Author: | nicko [ Sun 26. Jun 2005 21:02 ] |
Post subject: | Mætti tveimur Bimmum á rauðum nr |
Sælir, fyrir stuttu mætti ég tveimur bimmum á skógasandi á rauðum nr. Er einhver sem veit um það mál???? |
Author: | drolezi [ Sun 26. Jun 2005 21:35 ] |
Post subject: | |
Er þetta ekki bara nýji bílkostur lögreglunnar? |
Author: | xzach [ Sun 26. Jun 2005 21:43 ] |
Post subject: | |
Maður er alltof áberandi í umferðinni ![]() |
Author: | xzach [ Sun 26. Jun 2005 23:09 ] |
Post subject: | |
Ég og vinur minn vorum að flytja inn 2 BMW 320i E36 '92. Tókum okkur saman og fórum bara til Þýskalands og versluðum okkur þá og keyrðum heim. Nokkrar myndir af þeim. ![]() ![]() |
Author: | Aron Andrew [ Sun 26. Jun 2005 23:13 ] |
Post subject: | |
Til hamingju! En hvar er neðsta myndin tekin? Bara flott þarna á bakvið! |
Author: | xzach [ Sun 26. Jun 2005 23:14 ] |
Post subject: | |
Tekin í bæ í Færeyjum. Held að hann heiti Eiði. Ekki viss. |
Author: | Elton [ Tue 28. Jun 2005 17:29 ] |
Post subject: | Hrikalega er þetta góð hugmynd hjá ykkur |
Til hamingju með gripina! Hvert fóruði að versla og hvað voruði lengi? Ég hef margoft spáð í þessu en aldrei látið vera af þessu! |
Author: | Eggert [ Tue 28. Jun 2005 17:30 ] |
Post subject: | |
Já, og svo er stóra spurningin... hvaða vélar eru í þessum bílum? |
Author: | Day [ Tue 28. Jun 2005 17:35 ] |
Post subject: | |
Eggert wrote: Já, og svo er stóra spurningin... hvaða vélar eru í þessum bílum?
Hann segir 320 þarna uppi ![]() |
Author: | xzach [ Tue 28. Jun 2005 18:18 ] |
Post subject: | |
Ég og félagi minn ákváðum þetta fyrir nokkrum mánuðum. Skoðuðum okkur um á netinu og vinur minn fann sér bíll á netinu á www.autoscout24.de . Emailaði á eigandan sem brást vel við og eftir smá innlagningu á peningi til hans tók hann bílinn af síðunni. Svo fórum við bara til Frankfurt með flugi og Köln með rútu. Þar hittum við hann og fengum þann bíll. Svo glögvaði ég bara í "smáauglýsingar" í Köln og fann minn bíll. Redduðum báðum bílunum og 3 dögum. Fengu bráðabirðaplötur í þýskalandi sem þessi hjón skráðu á sig sem seldu vini mínum bílinn. Svo keyrðum við bara til Danmökrku. Var smá vandamál við landamærinn þar sem við megum ekki keyra á þessum plötum í Danmörku. Fengum Bráðabirgðarplötur hjá Landamæralögrelgustöðinni. Keyrðum til Handstholm og þaðan heim. Vorum í Þýskalandi í 4 daga. 2 Daga að redda kaupunum hina dagana að redda númerum og ferðast. Verð að segja að ferðinn okkar heppnaðist óraunsæislega vel enda var allt fólk sem við hittum á mjög vinsamlegt við okkur. Allt frá Seljendumum, Landamæravörðunum, tollvörðunum á Seiðisfirði. Verð eiginlega að þakka Tollinum á Seiðisfirði fyrir að hjálpa okkur í gegnum tollafgreiðsluna. Þessi papírsvinna sem við fengum hefði alveg mátt vera á kóreisku í okkar höndum en þeir hjálpuðu okkur að filla það út. Ég tala alltof mikið. |
Author: | xzach [ Tue 28. Jun 2005 18:22 ] |
Post subject: | |
Gleymdi að segja að við vorum held ég 5 daga á meginlandinu svo var ferjan sem tók aðra 5 daga. Þurftum að stoppa í Færeyjum í 3 daga ![]() |
Author: | bjahja [ Tue 28. Jun 2005 18:35 ] |
Post subject: | |
Virkilega flottir bílar báðir tveir og 17" felgur alveg roslalega töff ![]() Til hamingju með þetta ! |
Author: | gstuning [ Tue 28. Jun 2005 18:36 ] |
Post subject: | |
Mér finnst þið geðveikt góðir að skella ykkur út og sækja svona bílanna |
Author: | ragz [ Tue 28. Jun 2005 19:23 ] |
Post subject: | |
Flottir bílar, svona til gamans hvað kostuðu bílarnir hingað komnir með öllu? |
Author: | drolezi [ Tue 28. Jun 2005 20:10 ] |
Post subject: | |
Coupeinn ca 500k Sedaninn ca 400k |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |