bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Fólk er fifl !
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=10886
Page 1 of 1

Author:  Valdi- [ Wed 22. Jun 2005 02:07 ]
Post subject:  Fólk er fifl !

user : valdi
pass : saltvatn

Jæja ég varð bara að henda inn einum pósti, það sýður nefnilega á mér og ég hef engan til að röfla í :(
Image
ég lánaði konunni bílinn i vinnuna, ekkert að því svo sem, en þegar hún var búin að vinna og kom á bílnum heim tók ég eftir þessari fjandans rispu..
Svo virðist vera sem að einhver hafi labbað utan í bílinn með eitthvað. Ég skil bara ekkert í þessu, hvernig fólk getur gert þetta og ekki látið vita,
ég hef reyndar aldrei lent i því sjálfur að labba svona utan í bíl,
en ég myndi ekki trúa mér til annars en að láta amk. vita, eða skilja eftir símanúmer eða eitthvað álíka. Reyndar eru rispurnar alls ekki djúpar,
en þessir skítablettir virðast sitja alveg fastir í þeim, ég hef ekki ennþá komist að því hvað þeir eru.
Öll ráð væru vel þegin um hvað ég gæti gert til að draga úr skaðanum, því að ég sé ekki fram á að geta lagað þetta fyrr en í haust :(
Ég meina ef að þetta er ekki það djúpt, gæti þetta sloppið með mössun
eða einhverju álíka? Hvar er ódýrast að fara og láta meta tjónið, hverjir
eru ódýrastir í svona viðgerðum o.s.frv. Öll svör mjög vel þegin.
Með fyrirfram þökkum Valdi-

Author:  oskard [ Wed 22. Jun 2005 08:11 ]
Post subject: 

á þessari mynd virðist nú bara vera hægt að massa þetta af

Author:  Benzari [ Wed 22. Jun 2005 09:29 ]
Post subject: 

Hef alltaf séð frábær bón-vinnubrögð "Hjá Jobba" í SKeifunni, mæli með að þú kíkir til þeirra og fáir tilboð.

Ódýrast er að prófa Autoglym Super resin polish, eða SONAX lakkhreinsi til að byrja með.

Author:  Valdi- [ Wed 22. Jun 2005 12:13 ]
Post subject: 

takk fyrir svörin. Ég ætla að kíkja á þetta.

Author:  A.H. [ Wed 22. Jun 2005 14:33 ]
Post subject: 

Þetta líkist förum sem koma eftir skítuga tjörukústa á bensínstöðvum. Fór konan þín ekki bara með bílinn á bensínstöð til að þrífa?
Nei, annars veit ég ekki.

Þú gætir prófað að sprauta tjöruhreinsi á þetta, látið hann sitja á þessu í 3 mín. (eða þann tíma sem stendur á brúsanum) og tekið svamp og reynt að ná þessu af. Ef þetta eru för eftir kúst þá ætti það að duga.

Annars er líklegast málið að massa þetta.

Author:  Valdi- [ Wed 22. Jun 2005 16:41 ]
Post subject: 

A.H. wrote:
Þetta líkist förum sem koma eftir skítuga tjörukústa á bensínstöðvum. Fór konan þín ekki bara með bílinn á bensínstöð til að þrífa?

Ég hafði nú vit á því að banna konunni strax að kústa bílinn þegar ég keypti hann 8)
Ég fór með hann á bónstöðina sem Benzari benti mér á og viti menn, kallinn gerði þetta fyrir 1000 kall og tók ekki nema svona 10 min. Reyndar eru alveg rispur ennþá, en þær eru amk. ekki sjáanlegar nema þú sért að
leita að þeim. Þetta kom allavega mun betur út en ég þorði að vona :D
Ég læt síðan laga þessar rispur síðan við tækifæri.

Takk fyrir öll svörin strákar, gott að hafa góða að ;)

Author:  IceDev [ Thu 23. Jun 2005 00:03 ]
Post subject: 

OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHH


Fólk er án efa fífl

Viti menn, það var hurðað mig í dag og kom ekki dæld á versta stað í heimi!

Hún er ekki stór en GUÐ MINN ALMÁTTUGUR HVAÐ HÚN FER Í MIG!


Þetta var að öllum líkindum jeppi á miðað við hæðina á beygluni og var hann hvítur ;(


Það er nú ekki eins og vindurinn var að blása sterklega á hurðir í dag né neitt, fólk er bara heimskt og ótillitsamt




Til hurðaskellara: Þið sjúgið getnaðarlimi á hesti

Til fólki sem er að passa sig: Grats, haldið því áfram


:argh: :argh:

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/