Page 1 of 1

BMW 318IS

PostPosted: Mon 20. Jun 2005 14:47
by ArnarK
Sælir.

Ég fann 318IS hvítan á sölu núna um daginn og var bara að pæla hvort einhver hér vissi eitthvað um þennan bíl. Þetta er 93 árgerð og keyrður 185þ. Lítur allaveganna ágætlega út.

Þetta er bíllinn hérna:
http://www.bilasolur.is/Main.asp?SHOW=C ... _ID=141320

Hef áhuga á að kaupa mér góðan BMW sem eyðir ekki rosa og mér finnst 318IS bílarnir flottir. Langar bara að vita hvort það sé eitthvað vit í að kaupa þennan bíl, hvort hann sé vel með farinn og annað.

PostPosted: Mon 20. Jun 2005 17:17
by Elnino
persónulega finnst mér þetta vera of hátt verð fyrir bílinn... bara mitt álit

PostPosted: Mon 20. Jun 2005 17:32
by gunnar
þessi bílll er búinn að vera á sölu í langann tíma....

Fór haffi ekki að skoða hann ?

PostPosted: Mon 20. Jun 2005 18:02
by bjahja
Ég og Haffi kíktum á þennan og hann er ekki fullkominn.
Það var eithvað vélarvesen sem ég man ekki alveg hvað var :? og svo soldið svona útlits dót, laus hliðarlisti og fleirra. Hann er búinn að vera heillengi á sölu og mig minnir að sonurinn hafi átt bílinn og hann var úti einhverstaðar og pabbi hans að selja bílinn.

PostPosted: Mon 20. Jun 2005 19:48
by Knud
Tja, það sem ég hef heyrt um þenann bíl er ekkert alltof gott.
T.d að hann hefði lent í eitthverjum stórtjónum og væri mikið til plast.