Page 1 of 1

Bílar meðlima.

PostPosted: Tue 18. Mar 2003 11:42
by hlynurst
Ég sá þegar ég var að lesa skráningapóstið að á stefnuskránni væri að hafi pláss á síðunni þar sem bílar meðlima væru. Myndir og upplýsingar um þá. Svo ég er aðeins að forvitnast hvenær þetta á að fara í gagnið. Núna eruð þið að fá upplýsingar um bíla meðlima þannig að þær ættu að fara að liggja fyrir. Ég er spenntur að sjá hvernig útkoman verður. :)

PostPosted: Tue 18. Mar 2003 11:51
by arnib
Góð hugmynd, það væri gaman að geta lesið nánar um hvern bíl fyrir sig og geta séð góðar myndir og svona :)

Var samt ekki "Bílar Meðlima" parturinn af spjallinu hugsaður til að covera þetta?

PostPosted: Tue 18. Mar 2003 12:15
by Gunni
bílar meðlima parturinn er þá kannski meira ef menn breyta einhverju eða fá sér eitthvað nýtt og vilja sýna okkur hinum.

stefnan er að setja upp meðlimaskrá, með upplýsingum um alla bílana (þ.a.s. hjá skráðum meðlimum) og 2-4 myndum.

en við verðum að bíða rólegir, þetta kemur allt með kalda vatninu :)

PostPosted: Tue 18. Mar 2003 12:34
by hlynurst
Gaman að heyra... bílar meðlima hér á spjallinu er ekki nógu aðgengilegt. Ef maður er t.d. að leita að einhverjum ákveðnum bíl þá þarf maður að leita og leita til að finna hann því að topic-in segja sama og ekkert hvernig bíllinn er. :roll:

PostPosted: Tue 18. Mar 2003 14:10
by arnib
Ég og oskard ættum að geta hent svona saman í php ef það er áhugi fyrir því!

PostPosted: Tue 18. Mar 2003 14:11
by bebecar
Það væri kúl!

PostPosted: Tue 18. Mar 2003 14:55
by hlynurst
Mér líst bara mjög vel á það... ég hef séð það sem þú getur í tölvum þannig að ég styð þetta. :wink:

PostPosted: Tue 18. Mar 2003 18:28
by oskard
Jám við höfum verið að pæla í að henda upp íslensku cardomain en erum bara svo hræddir um að það væri ekki notað nægilega mikið til þess að það væri þess virði að hafa fyrir því að gera þetta. En það er minsta málið að henda upp svona mini-cardomain bara fyrir okkur. :)

PostPosted: Tue 18. Mar 2003 19:17
by arnib
Gott að þú ert ekki mótfallinn, svona þar sem ég bauð þína aðstoð fram líka , hehehe :D :D

PostPosted: Tue 18. Mar 2003 19:34
by bjahja
Ég var einmitt að pæla um daginn afhverju það yrði ekki gerður betri síða um bíla meðlima :)