bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Skráning meðlima 2005 https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=10277 |
Page 1 of 3 |
Author: | Gunni [ Tue 26. Apr 2005 23:45 ] |
Post subject: | Skráning meðlima 2005 |
Þá er loksins komið að því að skráning meðlima fyrir árið 2005 hefjist á fullu. Meðlimafjöldi í fyrra var framar öllum vonum, og vonum við að enn fleiri BMW áhugamenn bætist í hópinn í ár. Að sjálfsögðu átti þessi vinna að vera löngu farin af stað, en vegna anna stjórnenda þá tafðist þetta. Nú er tímabilið okkar frá 1. apríl 2005 til 31. desember 2005. Ástæðan fyrir þessu er sú að við viljum færa meðlimatímabilið inná almanaksárið. Árgjaldið er nú 2000 kr. Nánari upplýsingar um skráningarferlið og annað slíkt er að finna á skráningarsíðunni. Að öllu óbreyttu verður árgjaldið fyrir 1.jan'06-31.des'06 það sama. Þeir sem skráðir voru meðlimir í fyrra fá nú senda greiðsluseðla. Þetta er gert til að einfalda alla vinnu við skráningu og innheimtu. Í þessum töluðu orðum er ég að setja greiðsluseðlana í umslög og ættu þeir að skríða innum lúgur kraftakarla og kvenna í vikunni. Sumarið er tíminn eins og einhver sagði og má búast við að brjálað verði að gera á næstunni, samkomur, rúntar, grill og margt annað. Einnig fer fyrsta árshátíð BMWKrafts að líta dagsins ljós, ef áhugi félagsmanna er fyrir hendi. Nánar verður tilkynnt um hana síðar. Meðlimir fá afslætti sem fyrr hjá fyrirtækjum um bæjinn (sjá fríðindasíðu) og það er verið að vinna í því að fá ný fyrirtæki inn og bæta kjörin. Hin vinsæli Bíll Mánaðarins mun halda áfram að tröllríða bílasamfélaginu sem aldrei fyrr. Þetta er aðeins brot af því besta og margt annað skemmtilegt að gerast í klúbbnum sem ekki hefur verið tekið fram hér. Einnig má geta þess að nú er ný pöntun af númeraplöturömmum merktum www.bmwkraftur.is komin af stað og ættu þeir að verða tilbúnir innan mánaðar. Meðlimir munu get keypt rammana á kostnaðarverði. Tilkynningin verður birt þess efnis. Við vonum innilega að sem flestir kjósi að gerast meðlimir í BMW klúbbnum okkar, bæði nýjir og gamlir. Það er löngu sannað að þeir sem eru saman komnir í þessu BMW samfélagi eru með sterkari og skemmtilegri hópum sem menn hafa augum litið í háa herrans tíð. Kær kveðja, Stjórn BMWKrafts |
Author: | Henbjon [ Tue 26. Apr 2005 23:54 ] |
Post subject: | |
Ætla að skrá mig á næstunni ![]() ![]() |
Author: | hlynurst [ Wed 27. Apr 2005 00:35 ] |
Post subject: | |
Búinn að borga þetta og sé ekki eftir þessum pening. Þessi klúbbur er búinn að standa sig með mikilli prýði um mun eflaust gera það áfram. ![]() |
Author: | Dori-I [ Wed 27. Apr 2005 01:17 ] |
Post subject: | |
já mér líst vel á þetta.. ![]() |
Author: | Kristjan [ Wed 27. Apr 2005 02:10 ] |
Post subject: | |
Geng frá þessu um mánaðarmótin, tími til kominn. |
Author: | Chrome [ Wed 27. Apr 2005 02:45 ] |
Post subject: | |
Sama hér ![]() |
Author: | xiberius [ Wed 27. Apr 2005 04:50 ] |
Post subject: | Re: Skráning meðlima 2005 |
Gunni wrote: ... Einnig fer fyrsta árshátíð BMWKrafts að líta dagsins
ljós, ef áhugi félagsmanna er fyrir hendi. Nánar verður tilkynnt um hana síðar... Bara ein hugmynd. Þar sem "sumarið er tíminn", og þá sérstaklega fyrir bílakalla eins og okkur, er þá ekki ráð að setja þetta einhverstaðar á haustmánuði, svona til að lyfta okkur upp þegar það fer að líða að því að þurfa að setja sumardekkin undir? Bara pæling... Annars millifærði ég um daginn, bara að bíða eftir meðlimskortinu... ![]() |
Author: | Dinan [ Wed 27. Apr 2005 20:08 ] |
Post subject: | |
ég gekk frá þessu um leið og ég sá þetta á heimabankanum btw, verða kortin ekki seint von bráðar? þarf að fara flassa því á allavega 2stöðum. |
Author: | Gunni [ Wed 27. Apr 2005 22:18 ] |
Post subject: | |
Dinan wrote: ég gekk frá þessu um leið og ég sá þetta á heimabankanum
btw, verða kortin ekki seint von bráðar? þarf að fara flassa því á allavega 2stöðum. Jú fyrsta sending af kortum er þegar farin og nú erum við bara að fara í næsta skammt. kv. Gunni |
Author: | zazou [ Wed 27. Apr 2005 22:23 ] |
Post subject: | |
Minnz setti í dag 'peninginn þar sem munnurinn er' ![]() |
Author: | fart [ Wed 27. Apr 2005 22:23 ] |
Post subject: | |
Borgaði um leið og þetta datt inn í heimabankan.. þ.e. ég setti þetta á framvirka greiðslu og þetta verður greitt sjálfkrafa a eindaga, alveg óþarfi að gefa vextina eftir. ![]() |
Author: | Logi [ Wed 27. Apr 2005 22:31 ] |
Post subject: | |
Þetta hefur að sjálfsögðu verið greitt.... |
Author: | Svezel [ Wed 27. Apr 2005 23:04 ] |
Post subject: | |
Sá þetta fyrir nokkru í einkabankanum og var nú ekkert að borga þetta fyrrr en núna. Ætlaði ekkert að borga fyrr en á eindaga eins og ég geri með aðra reikninga en nú ákvað ég að splæsa aðeins fram í tímann afþví að þetta er nú krafturinn ![]() |
Author: | zazou [ Wed 27. Apr 2005 23:19 ] |
Post subject: | |
Er hægt að fá skráasvæði? Fylgir það nokkuð með í kaupunum ![]() |
Author: | Gunni [ Thu 28. Apr 2005 12:03 ] |
Post subject: | |
fart wrote: Borgaði um leið og þetta datt inn í heimabankan.. þ.e. ég setti þetta á framvirka greiðslu og þetta verður greitt sjálfkrafa a eindaga, alveg óþarfi að gefa vextina eftir.
![]() Það eru engir vextir ![]() ![]() |
Page 1 of 3 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |