Stjórnendur.

Hér skal spjalla um BMW.

Stjórnendur.

Postby Þórir » Tue 26. Apr 2005 22:25

Er ekki séns að loka á bílasala sem koma hingað á spjallið í þeirri trú að þeir geti grætt á okkur? Mér finnst orðið mjög pirrandi að fylgjast með " til sölu " dálknum þar sem einhver bílainnflytjandi er að reyna að pranga dótinu sínu inn á okkur spjallaverja.

Þannig er nú bara að í þessum töluðu orðum er ég að flytja inn BMW-inn sem mig er búið að langa í lengi. Ég fór nú bara til aðila sem sér um að finna bílinn og flytja hann inn og ég er viss um að flestir meðlimir spjallsins gera það. Þess vegna er algerlega óþarft að við þurfum að lesa "pósta" eftir atvinnu bílasala, þá getum við allt eins farið inn á bilasolur.is.

Þetta er að mínu viti málefnalegasti og skemmtilegasti bílaspjallvefur á landinu og er það mestmegnis vegna skörungsháttar stjórnenda spjallsins sem þora að henda út vitleysingum og leiðindafólki. Til að mynda hef ég það á tilfinningunni að margir spjallverjar hafi þorað að fara út í kaup á eldri BMW bílum sem þeir hefðu ekki þorað nema vegna hins sterka BMW samfélags sem hérna er. Ég sjálfur er búinn að vera BMW laus í hálft ár en í næstu viku lýkur því vonandi.

Kannski er ég bara búinn að fá mér of mikið rauðvín. :?
User avatar
Þórir
Getawaybílstjóri
 
Posts: 597
Joined: Fri 20. Dec 2002 22:00
Location: R.vík

Postby Henbjon » Tue 26. Apr 2005 22:36

Ég er sammála þér með þennan bílasala. Klárlega skemmtilegasta og besta spjallið hérlendis. Eina spjallið sem maður nennir að tjekka á daglega :wink: .
Henbjon
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1258
Joined: Sun 02. May 2004 13:27

Postby bjahja » Tue 26. Apr 2005 22:48

Mér finnst nú i lagi að menn séu að selja sína eigin bíla sem þeir eru að flytja inn.
Annað mál ef menn væru að vinna hjá bílasölu, þá væri óviðeigandi að pósta hér til sölu.

Þegar menn eru að flytja inn bíla sjálfir, hvort sem það er til að eiga eða bara með þeim tilgangi að selja þá finnst mér í lagi að pósta þeim hérna til sölu.
bjahja
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 9014
Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Location: Italia

Postby Day » Tue 26. Apr 2005 23:07

Iss meiga hanga inni ef þeir taka gagnrýni þá finnst mér það í góðu lagi. En að koma með skítkast og vera bara fúlir við smá commentum. Láta þá flakka bara! :)
BMW 320i e46 Alpinweiss - 1999 /// Til sölu
User avatar
Day
Kassabílstjóri
 
Posts: 172
Joined: Wed 23. Jun 2004 23:03
Location: Akranes

Postby Henbjon » Tue 26. Apr 2005 23:48

Allt í lagi að menn selji bíla sína á sínum verðum en það er annað þegar menn fara í vörn og skjóta á fólk.
Henbjon
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1258
Joined: Sun 02. May 2004 13:27

Postby fart » Wed 27. Apr 2005 05:11

Gaurinn sem var að auglýsa hérna er ekki bílasali.

Og.. það prangar enginn neinu inn á neinn nema viðkomandi kaupandi sé hálfviti. Það er hægt að segja nei.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby BMWaff » Wed 27. Apr 2005 13:24

Finnst þetta bara í góðu lagi.. Fínt að geta séð hvað er í boði... Kanzki rekast á eitthvað sniðugt...
Núið:
BMW 730d '04
BMWaff
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1121
Joined: Sun 24. Aug 2003 20:11
Location: Rvk

Postby Spiderman » Wed 27. Apr 2005 18:32

Engan vegin sammála þessu innlegggi, gæði spjallsins myndu minnka ef stjórnendur ættu að velja þá notendur sem mættu auglýsa og hverja ekki. Það er engin að pranga bílum uppá neinn og þeir sem kaupa bíla eins og 350Z og M5 vita alveg hvers virði bílarnir eru. Það hleypur engin til og kaupir M5 á 5 millur og áttar sig á því að hann hafi verið blekktur. Að mínu mati er gæði spjallsins best tryggt með því að menn fái að auglýsa hér óáreittir nema auðvitað fyrirtæki sem geta þess í stað keypt auglýsingar eða stutt klúbbinn til þess að vekja athygli á sér.
BMW X3 M tech (F25) árg. 2015
VW Golf MK 3,5 cabriolet árg. 2001
Porsche 911 SC árg. 1980
Porsche 924 árg. 1982
Porsche 928 S4 árg. 1991

Nikolai Smolenski wrote: Buy a Ferrari and you become a member of a club. Buy a TVR and you remain an individual
User avatar
Spiderman
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1117
Joined: Mon 09. Jun 2003 19:49
Location: Hafnarfjörður

Postby BMWaff » Wed 27. Apr 2005 18:55

Spiderman wrote:Engan vegin sammála þessu innlegggi, gæði spjallsins myndu minnka ef stjórnendur ættu að velja þá notendur sem mættu auglýsa og hverja ekki. Það er engin að pranga bílum uppá neinn og þeir sem kaupa bíla eins og 350Z og M5 vita alveg hvers virði bílarnir eru. Það hleypur engin til og kaupir M5 á 5 millur og áttar sig á því að hann hafi verið blekktur. Að mínu mati er gæði spjallsins best tryggt með því að menn fái að auglýsa hér óáreittir nema auðvitað fyrirtæki sem geta þess í stað keypt auglýsingar eða stutt klúbbinn til þess að vekja athygli á sér.


word!
Núið:
BMW 730d '04
BMWaff
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1121
Joined: Sun 24. Aug 2003 20:11
Location: Rvk

Postby gstuning » Wed 27. Apr 2005 19:27

Afhverju leggjast alltaf allir sameiginlega á það að vernda seljandann?
Enginn má commenta á það sem er til sölu nema að það sé eitthvað gott.

Ef ég myndi vita af tjónuðum bíl eða eitthvað sem er ekki 100% frá seljanda þá myndi ég frekar vilja vernda kaupendur heldur en seljendur,

Ég er á móti lokuðum sölu þráðum og hindra fólk í að setja inn auglýsingar,
En mér finnst líka í fínu lagi að ef einhvern veit af sögu bílsins þá sé það í lagi að segja frá, ég meina ef það er í lagi að gagnrýna annarstaðar á spjallinu það sem fólk skrifa afhverju er það eitthvað illa á litið

Held að þetta verði mitt síðasta innlegg í sambandi við þessi mál, ég nenni ekki að vera stofna til einhverja leiðinda,
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE

Postby BMWaff » Wed 27. Apr 2005 19:54

Auðvita á það að vera í lagi með hluti einsog tjóin og svoleiðis.. Ef menn VITA með vissu eitthvað sem gæti gagnast... En að vera með skítkast útaf verði á bíl finnst mér óþarfi... mátt segja þitt álit.. EN einsog margir hérna hafa sagt Þá er Rétt Verð Fyrir Bíl það sem seljandin vill fá fyrir hann... Gæti verið of mikið finnst þér.. kanzki of lítið.. En ef seljandin vill ´fa þetta þá er það bara hanns mál..

Og Allir happy :)
Núið:
BMW 730d '04
BMWaff
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1121
Joined: Sun 24. Aug 2003 20:11
Location: Rvk

Postby bebecar » Wed 27. Apr 2005 20:06

gstuning wrote:Afhverju leggjast alltaf allir sameiginlega á það að vernda seljandann?
Enginn má commenta á það sem er til sölu nema að það sé eitthvað gott.

Ef ég myndi vita af tjónuðum bíl eða eitthvað sem er ekki 100% frá seljanda þá myndi ég frekar vilja vernda kaupendur heldur en seljendur,

Ég er á móti lokuðum sölu þráðum og hindra fólk í að setja inn auglýsingar,
En mér finnst líka í fínu lagi að ef einhvern veit af sögu bílsins þá sé það í lagi að segja frá, ég meina ef það er í lagi að gagnrýna annarstaðar á spjallinu það sem fólk skrifa afhverju er það eitthvað illa á litið

Held að þetta verði mitt síðasta innlegg í sambandi við þessi mál, ég nenni ekki að vera stofna til einhverja leiðinda,


Bíll sem ekki er 100% frá seljanda, t.d. tjónaður, er bara allt annað mál. Það eru náttúrulega svik að reyna að selja þannig undir fölsku flaggi. Það er ekki hægt að segja það sama þó eitthvað sé dýrt :!:
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101


Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 47 guests