Page 1 of 1

Grein um BMWKraft .

PostPosted: Mon 18. Apr 2005 19:11
by Stefan325i
Þokkalega góð kynningar grein í nýasta tölublaði Bílar&Sport

í henni er farið í gegnum starfsemi klúbbsins og myndir af bílum nokkra félaga úr klúbbnum, það kom mér skemtilega á óvart að það hafi verið mynd af bílnum mínum í blaðinu . :D

Svo var mynd af Sveinbjös Z3 , sæma sexy 6er, hjörts e36, gunni GSTuning eithvað að stilla í vélarrýminu hjá sér, þrastar Z4 og ein samkomumynd, helvíti flott.

Er einhver ábyrgur fyrir þessu hér og ef svo er þá er þetta mjög flott hjá þér :lol: :lol: :lol: :lol:

PostPosted: Mon 18. Apr 2005 19:29
by Svezel
Töff!

Ég þarf að sjá þetta. Fæst þetta blað ekki á bensínstöðvum?

PostPosted: Tue 19. Apr 2005 03:07
by Gunni
Já ég er ábyrgur fyrir þessu. Ég skrifaði greinina og valdi myndirnar. Ég hafði ekki tíma til að "spurja menn um leyfi" fyrir að setja myndir í blaðið. Ég bjóst svosem við að allir vilji fá mynd af sínum bíl í blað ;)

Ég vissi ekki að þetta væri komið út :roll: Best að kíkja á þetta á morgun :)

PostPosted: Tue 19. Apr 2005 08:01
by jens
:clap:

PostPosted: Tue 19. Apr 2005 08:41
by hjortur
Ehem svo ég prófi að vera anal stafsetningarnörd, "hjörts e36" != hjartar e36.

Er þetta mynd af mínum e36 ?

PostPosted: Tue 19. Apr 2005 12:35
by Gunni
hjortur wrote:Ehem svo ég prófi að vera anal stafsetningarnörd, "hjörts e36" != hjartar e36.

Er þetta mynd af mínum e36 ?


Já þetta er mynd af þínum, en var samt minn þegar myndin var tekin ;)

PostPosted: Tue 19. Apr 2005 12:42
by Stefan325i
sorry hjörtur ég er ekki manna bestur í þessu stafsetningar dóti en vonandi ertu ekki sár. :oops:

PostPosted: Tue 19. Apr 2005 13:01
by hjortur
Stefan325i wrote:sorry hjörtur ég er ekki manna bestur í þessu stafsetningar dóti en vonandi ertu ekki sár. :oops:


No sweat 8) ég bara reyni að leiðrétta þessa villu þegar ég sé þetta.

Verst að ég hef aldrei séð þetta blað hérna fyrir vestan ...

PostPosted: Tue 19. Apr 2005 13:06
by Logi
Mjög gott, maður verður að ná sér í eintak....

PostPosted: Tue 19. Apr 2005 15:05
by Thrullerinn
Nennir einhver að skanna þetta inn? Er það kannski bannað ?? :-k

Kv. Þröstur

PostPosted: Tue 19. Apr 2005 16:59
by hlynurst
Thrullerinn wrote:Nennir einhver að skanna þetta inn? Er það kannski bannað ?? :-k

Kv. Þröstur


Er ekki bara um að gera að styrkja þá sem standa að þessu um nokkrar krónur? Það er nú ekki mörg íslensk bílablöð sem hægt er að kaupa þessa dagana. :)

PostPosted: Tue 19. Apr 2005 17:31
by Thrullerinn
hlynurst wrote:
Thrullerinn wrote:Nennir einhver að skanna þetta inn? Er það kannski bannað ?? :-k

Kv. Þröstur


Er ekki bara um að gera að styrkja þá sem standa að þessu um nokkrar krónur? Það er nú ekki mörg íslensk bílablöð sem hægt er að kaupa þessa dagana. :)


Nákvæmlega, hlakkar bara til að sjá þetta :)

Kv. Nískupúkinn :D

PostPosted: Tue 19. Apr 2005 18:46
by bjahja
Hvaða djöööö, ég er búinn að fara í 5 bensínstöðvar og þetta er hvergi til :?

PostPosted: Wed 20. Apr 2005 17:56
by Bjarkih
Kannski hægt að panta eintak á síðunni þeirra? http://www.bilarogsport.is/