bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
undir milljón leikfang, hugmynd https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=10138 |
Page 1 of 6 |
Author: | fart [ Mon 18. Apr 2005 11:28 ] |
Post subject: | undir milljón leikfang, hugmynd |
Jæja félagar, ég bara kemst ekki yfir það hvað það vara gaman á brautinni síðasta fimmtudag. Það er ekki alveg ókeypis að keyra trukkinn þarna (19" eða 18" dekk og 45L/100 í actioni). þannig að ég er að velta fyrir mér kaupum á spes bíl fyrir þetta. SKilyrðin eru: -Halda vatni og veðrum -Ökuhæfur sem daily driver -RWD! -1mkr max NB.. Setti E30 M3 þarna því að það er bíll sem ég væri hugsanlega til í að fara í og brjóta 1mkr markið ef ég myndi finna gott eintak. |
Author: | Djofullinn [ Mon 18. Apr 2005 11:37 ] |
Post subject: | |
Ég segi E30 325i 2 door Fyrir vel undir milljón getur þú verið búinn að fríska aðeins upp á vélina og fá þér alvöru fjöðrun, jafnvel veltibúr ef útí það er farið. Mikið hægt að rífa úr honum til að létta hann. Margir sem eru ennþá að búa til tuning parta fyrir þá þannig að það er endalaust hægt að kaupa skemmtilega hluti í þá. Og varahlutir í þá eru útum allt og á fínum verðum. Edit: Menn virðast vera hrifnir af því að þú kaupir E30 M3 en ég held að það sé ekki praktískt. Alltof dýr bíll og alltof dýrir varahlutir. Getur gert 325i mun betri á brautinni en M3 fyrir minni pening |
Author: | arnib [ Mon 18. Apr 2005 11:41 ] |
Post subject: | |
Þar sem að þú að leita þér að leikfangi fyrir Auto-X held ég að 325iC eigi ekki heima á listanum. Hann er bæði þyngri og mun dýrari svo það skilur minni pening eftir til að versla fjöðrunarkerfi og allt þetta skemmtilega fyrir Auto-X ið ![]() Hann gæti auðvitað virkað vel þar (við munum sjá hvað setur í sumar á mínum ![]() ![]() Ég sé að það eru nokkrir búnir að kjósa E30 M3, sem er vel skiljanlegt enda ótrúlegir bílar, en það er eins og þú segir sjálfur að líklega þarf að fara yfir milljón til að finna gott eintak. Ég hugsa að málið sé að reyna að finna 318iS, eða 325i, (350-400 þús?) og spenda í góða fjöðrun í hann og fóðringar (60-100 þús.. ). Krafturinn skiptir bara svo mikið minna máli heldur en að geta beygt hratt í þessu. |
Author: | gunnar [ Mon 18. Apr 2005 11:41 ] |
Post subject: | |
Nátturulega E30 M3 er bara málið... En svona fyrir Auto X og þannig lagað myndi ég mæla með E30 325.. Og kaus það ![]() |
Author: | arnib [ Mon 18. Apr 2005 11:41 ] |
Post subject: | |
Ég sé að ég og djöfullinn erum í sama liði ![]() |
Author: | fart [ Mon 18. Apr 2005 11:45 ] |
Post subject: | |
Fyrir þá sem þekkja ekki 320is þá er það 4banger með M mótor 192 hestöfl, læst drif (25%) Mtech-II og M-kassi. Sá bíll er favorite hjá mér eins og er. |
Author: | Djofullinn [ Mon 18. Apr 2005 11:50 ] |
Post subject: | |
arnib wrote: Ég sé að ég og djöfullinn erum í sama liði
![]() Algjörlega ![]() Annað sem vert er að minnast á. Það eru margir hér á spjallinu með mikla sérþekkingu á E30 325 sem gætu eflaust hjálpað þér eða gefið þér góða punkta þegar þarf að breyta, bæta eða laga eitthvað. |
Author: | arnib [ Mon 18. Apr 2005 11:54 ] |
Post subject: | |
fart wrote: Fyrir þá sem þekkja ekki 320is þá er það 4banger með M mótor 192 hestöfl, læst drif (25%) Mtech-II og M-kassi.
Sá bíll er favorite hjá mér eins og er. 320is er auðvitað óendanlega svalur bíll, og þá sérstaklega þegar kemur að skilgreiningum varðandi vélina. Hann kemst í flokka þar sem 2.0 vélar eru í hámarki, og tollast inn á 30%. En það er enginn slíkur á landinu, og ég geri ráð fyrir að þeir kosti töluvert mikið. Hvað kostar svoleiðis til landsins sirka? |
Author: | Djofullinn [ Mon 18. Apr 2005 11:55 ] |
Post subject: | |
fart wrote: Fyrir þá sem þekkja ekki 320is þá er það 4banger með M mótor 192 hestöfl, læst drif (25%) Mtech-II og M-kassi.
Sá bíll er favorite hjá mér eins og er. Það er sniðugur bíll en hann fellur í raun undir sama hóp og M3, of dýr og of dýrir varahlutir. Siðan er ég ekkert voðalega hrifinn af 4 cyl þó þetta séu M mótorar ![]() En að finna ódýran 320i (~100 þús) + M50/2 Swap (~150 þús) + Alvöru fjöðrun (~150 þús) + Túrbó ![]() |
Author: | arnib [ Mon 18. Apr 2005 12:01 ] |
Post subject: | |
Gerði smá könnun á mobile og svona síðum. Ég myndi segja að 320is í góðu standi sé að algjöru lágmarki 750-800 þúsund kominn hingað. |
Author: | gstuning [ Mon 18. Apr 2005 12:04 ] |
Post subject: | |
Góðir kostir og vel valið ![]() E30 325i Coupe/Sedan með læsingu pre facelift er léttari sérstaklega með engum aukahlutum, um 1145kg, á móti 325i með öllu um 1225-1255kg, líklega næst ódýrastur í innkaupum, ekki dýr í rekstri E30 Cabrio er ekki auto-x leiktæki og hentar ekki þessvegna E30 M3 er þyngstur og dýrastur í verslun og rekstri 320is er M3 í non M3 skel, jafn dýrt að reka og M3, aðeins minna að versla 944 Turbo , þekki ekki nóg til að segja. E36 325i Coupe, flott power, ekki nógu margir komu með læsingu og því aðeins erfiðara að finna svoleiðis, dýrarri en E30 325i í rekstri, en þó bara rétt aðeins, E30 318is, fullkominn í actionið, skipta um ása, kubb eða tölvu og þessi bílar eru komnir í 160hö, ódýrastur í innkaupum lang ódýrastur, líka sem daily driver, léttastur, betri þyngdardreifing en í öllum hinum, Þótt ég væri til í að sjá 320is á landinu, þá verð ég að mæla með E30 325i eða E30 318is |
Author: | gstuning [ Mon 18. Apr 2005 12:08 ] |
Post subject: | |
En þegar allt er skoðað þá er auðvitað M50 m/ vanos E30 lang besti kosturinn, minnsta eyðslan besta ending á vél eiginlega jafn þungur og 325i mega smooth vél. Þetta er hinn fullkomni daily driver og leiktæki in one, Fyrir þig Fart þá gæti verið sniðugt að fljúga út og láta gera swap úti og keyra svo sáttur heim bara ![]() ![]() |
Author: | fart [ Mon 18. Apr 2005 12:09 ] |
Post subject: | |
veit að Cabrio er þyngri en hinir, en ég held að það sé mjög gaman að drifta með toppinn niðri. BTW ég er ekki að fara að keppa í AutoX, ég vill bæra slæda eins og mofo. |
Author: | jens [ Mon 18. Apr 2005 12:09 ] |
Post subject: | |
Myndi segja að E30 325i sé bíllinn fyrir þetta verkefni hjá þér. En hvernig er það var ekki einhver spes fjöðrun í E30 318is jafnvel M fjöðrun. Hvað nákvæmlega hafði þessi 318is fram yfir 318i. |
Author: | gstuning [ Mon 18. Apr 2005 12:11 ] |
Post subject: | |
jens wrote: Myndi segja að E30 325i sé bíllinn fyrir þetta verkefni hjá þér.
En hvernig er það var ekki einhver spes fjöðrun í E30 318is jafnvel M fjöðrun. Hvað nákvæmlega hafði þessi 318is fram yfir 318i. Aðra vél t,d og 325i fjöðrun sport stólar topplúga að jafnaði og líklega þá rafmagn í rúðum |
Page 1 of 6 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |