bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

BMW 316 COMPACT M SPORT
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=10102
Page 1 of 2

Author:  Elnino [ Fri 15. Apr 2005 14:22 ]
Post subject:  BMW 316 COMPACT M SPORT

Góðann daginn

Þar sem eg er að fara að fá bílpróf eftir um 2 mánuði þá er ég farinn að leita að bílum og helst BMW kemur til greina. (er bmw fan eins og flestir herna :) )

Ég var að velta því fyrir mér hvort að þið getið látið mig fá smá info um þennan bíl, þ.e. eiganda, hvernig farið er með hann, mikið búið að þjösnast á honum og verðið á honum.
http://www.bilasolur.is/Main.asp?SHOW=C ... ID=148770#

Allar upplýsingar vel þegnar :)

Author:  IceDev [ Fri 15. Apr 2005 14:22 ]
Post subject: 

It's a compact :oops:

Author:  saemi [ Fri 15. Apr 2005 14:48 ]
Post subject: 

Þetta er alveg upplagður bíll sem fyrsti bíll.

Eyðir engu, góð handling, ekki of mikið afl (gott þegar maður er 17 ára).

EN.. það er mjög erfitt að losna við þessa bíla, svo þú ættir að geta fengið svona bíl á fínu staðgreiðsluverði.

Ég myndi ekki borga meira en svona 750-800þús stgr fyrir þennan.

Author:  oskard [ Fri 15. Apr 2005 14:48 ]
Post subject: 

compact eru snilldar bílar... fyrir utan rassinn :lol:

Author:  flamatron [ Fri 15. Apr 2005 14:49 ]
Post subject: 

Finndu þér þá compact með lúgu... það er bara gaman að vera með lúgu,, 8) , líka ekki mikið af þeim.

Author:  Elnino [ Fri 15. Apr 2005 14:51 ]
Post subject: 

sko ... þetta er fyrsti bíllinn.. og eg er ekki að leita að super krafti eða því um líkt.. mér finnst gaman að keyra flotta bíla en ekki þjösnast á þeim og fara illa með þa ...

Mæliði með þessu? kostir og gallar??

Author:  Elnino [ Fri 15. Apr 2005 14:52 ]
Post subject: 

og gleymdi einu.. hvað er hann ca í hestöflum 100 ?

Author:  oskard [ Fri 15. Apr 2005 15:02 ]
Post subject: 

held að hann sé 105hö

Author:  flamatron [ Fri 15. Apr 2005 15:12 ]
Post subject: 

Ég held að þetta sé bara frábær fyrsti bíll,,,
svo ef þig langar í aðeins meiri kraft er það bara loftintak + kubbur...
En annars góður bíll til að byrja á..

Author:  arnib [ Fri 15. Apr 2005 19:20 ]
Post subject: 

Yep, sammála fyrri ræðumönnum.

Ég hef í gegnum tíðina haft frekar lágt álit á svona Compact, en varð fyrir verulegu sjokki þegar ég fékk síðan að sitja í svoleiðis!
Þá komst ég að því að ég hafði verið virkilega fordómafullur, því að þetta eru virkilega góðir bílar!

Auðvitað er hann ekki svo kraftmikill, en alveg nóg sem fyrsti bíll, og á móti kemur að hann er afturhjóladrifinn sem gerir að verkum að hvert hestafl vegur þrefalt í skemmtun. 8)

Þessir bílar koma (flestir, ef ekki allir) með mjög góðri fjöðrun, liggja vel og ég veit ekki hvað og hvað.

Go for it.

Author:  ///Matti [ Fri 15. Apr 2005 19:31 ]
Post subject: 

Þú getur nú öruglega fundið þér ódýrari Compact :wink:
Ég átti svona ''tæki'' og mæli bara með honum,þrælfínir bílar :wink:

Author:  Elnino [ Fri 15. Apr 2005 19:56 ]
Post subject: 

já eg er að fara að skoða hann á mánudaginn það er örugglega hægt að prútta hann eitthvað en það fylgir allt með sem þarf 4 vetrardekk á álfelgum og 4 sumardekk á álfelgum, leður og fleira

ætla að skoða tækið og svo var verið að sýna mér annað... en það fer að koma af því að skipta um tímareim í honum... hvað kostar það ca. mikið?

Author:  bebecar [ Sat 16. Apr 2005 09:14 ]
Post subject: 

Ég fékk að keyra bílinn hjá honum Loga hér á spjallinu, að mínu mati eru þessir bílar alveg frábærir, smart, með vandaðar innréttingar, "nægilegt" afl og hörku handling...
Ég hef það á tilfinningunni að eftir 2-3 ár verði þessir bílar MJÖG vinsælir í vélarskipti 8)

Author:  Djofullinn [ Sat 16. Apr 2005 11:44 ]
Post subject: 

Skil samt ekki afhverju enginn hefur flutt inn 323ti
Eflaust massa skemmtilegur bíll 8)

Author:  BlitZ3r [ Mon 18. Apr 2005 18:20 ]
Post subject: 

http://www.bmw-freunde-weserland.de/michael_h_e36_323ti.htm


:twisted: :twisted: :twisted:

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/