bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
B&L gagnvart innfluttum bílum https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=10097 |
Page 1 of 2 |
Author: | WolfBlitzer [ Fri 15. Apr 2005 09:58 ] |
Post subject: | B&L gagnvart innfluttum bílum |
Hvernig er viðhorf B&L gagnvart innlfluttum BMW bílum? Viðhalda þeir ábyrgðinni á nýrri eintökum? Selja þeir varahluti og þjónustu á sama verði og þeirra fyrir eldri eintök? |
Author: | fart [ Fri 15. Apr 2005 10:36 ] |
Post subject: | |
Ég fæ alveg súper þjónustu bæði í búðinni og verkstæðinu. Jóhann og Bjarki eru mennirnir. Hef ekki látið reyna á nýja eða notaða, en sölustjóri nýrra er toppmaður. |
Author: | gstuning [ Fri 15. Apr 2005 13:37 ] |
Post subject: | |
Varahlutirnir kosta náttúrulega bara það sama, sama hver kemur og kaupir, nema að sá sé með afslátt annars er sama endursöluverð Ég hef alltaf fengið þá þjónustu sem ég hef átt von á og óskað eftir |
Author: | Thrullerinn [ Fri 15. Apr 2005 15:22 ] |
Post subject: | |
Kosturinn er að flestir eru að taka BMW frá Evrópu, sem einfaldar málin í flestum tilfellum. Ekkert annað en toppþjónusta upp í B&L. |
Author: | Eggert [ Fri 15. Apr 2005 17:46 ] |
Post subject: | |
Já, maður fær þjónustuna sem maður borgar fyrir. Annað en á mörgum öðrum stöðum. |
Author: | ta [ Sat 16. Apr 2005 00:15 ] |
Post subject: | |
hef fengið súper þjónustu á bíl influttum notuðum. engin leiðindi. hluti af bmw áhuga mínum er líka þessi TOPP þjónusta hjá BL. |
Author: | Eggert [ Sat 16. Apr 2005 01:57 ] |
Post subject: | |
ta wrote: hef fengið súper þjónustu á bíl influttum notuðum.
engin leiðindi. hluti af bmw áhuga mínum er líka þessi TOPP þjónusta hjá BL. Já, en verðið á þjónustunni og varahlutunum er líka ákveðið skemmandi. Auðvitað ekkert tiltökumál fyrir þá sem eru efnaðir. |
Author: | gstuning [ Sat 16. Apr 2005 03:15 ] |
Post subject: | |
Eggert wrote: ta wrote: hef fengið súper þjónustu á bíl influttum notuðum. engin leiðindi. hluti af bmw áhuga mínum er líka þessi TOPP þjónusta hjá BL. Já, en verðið á þjónustunni og varahlutunum er líka ákveðið skemmandi. Auðvitað ekkert tiltökumál fyrir þá sem eru efnaðir. Þeir sem eiga ekki efni á varahlutum eiga ekki efni á BMW ![]() |
Author: | Eggert [ Sat 16. Apr 2005 03:54 ] |
Post subject: | |
Jú það er líka hægt að segja það. En þjónustan er frábær og það er ekki endilega allt dýrt í BMW. Er núna búinn að fara og hitta Jóhann(held hann heiti það) í versluninni og fín þjónusta.. bæði skiptin þurft að borga klink fyrir það sem mig vantaði. En reyndar fór ég og lét skipta um hlut í BMWinum mínum um daginn hjá B&L, og bara sá varahlutur er 100% dýrari í B&L en t.d. TB. En þeir voru sanngjarnir á vinnuna, eiginlega of sanngjarnir. |
Author: | Gunni [ Sat 16. Apr 2005 09:02 ] |
Post subject: | |
Svo má auðvitað ekki gleyma því að meðlimir BMWKrafts fá 10% afslátt í B&L og 10-15% afslátt í TB : |
Author: | saemi [ Sat 16. Apr 2005 16:34 ] |
Post subject: | |
BMW varahlutir eru "dýrir" (og þjónustan) vegna þess að þetta er BMW. Ef við viljum ódýra varahluti og þjónustu.... þá ættum við að kaupa okkur Daiwoo ![]() |
Author: | Djofullinn [ Sat 16. Apr 2005 16:52 ] |
Post subject: | |
Eitt helvíti jákvætt líka við B & L að þegar mamma mín ætlaði að endurnýja BMW-inn sinn þá vildi ekkert umboð taka hann uppí nýjan/notaðan bíl því hann var innfluttur notaður nema B & L. Og hún keypti að sjálfsögðu annan BMW hjá þeim. ![]() Off topic: Fyrrverandi bíllinn hennar er einmitt til sölu núna uppí B & L ef einhverjum langar í kvennmannseknum BMW. Svartur 318is '97 ssk. Ekinn heilan helling eða 196.000, þar af ca. 70.000 af mömmu minni, 5000 af mér og síðan átti kona hann einnig á undan mér og hún var fyrsti eigandinn á íslandi. Halli hérna á spjallinu þekkir þennan bíl einnig vel þar sem hann er búinn að skipta um heilan helling í honum ![]() Sry með off topicið ![]() |
Author: | gunnar [ Sun 17. Apr 2005 01:53 ] |
Post subject: | |
Sá hann þar einmitt, geðveikt svalur.. Líka brjálaður 316 þarna .. ![]() |
Author: | Eggert [ Sun 17. Apr 2005 02:35 ] |
Post subject: | |
gunnar wrote: Sá hann þar einmitt, geðveikt svalur.. Líka brjálaður 316 þarna ..
![]() Hey, saumavélar eru líka ágætar ![]() ![]() |
Author: | force` [ Sun 17. Apr 2005 03:00 ] |
Post subject: | |
Mér hefur verið vísað frá, en það er eitthvað síðan. Man að sindri fór eitthvað að skoða það mál eftir það dæmi, veit ekkert hvað varð úr því, man ekki við hvern ég var að tala, en eftir það hef ég fengið skárri þjónustu, get ekki sagt að mér finnist það vera 100% þjónusta, en í varahlutunum eru þeir bara frábærir. |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |