bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Nýju græjurnar á götunni. https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=1009 |
Page 1 of 2 |
Author: | Benzari [ Thu 13. Mar 2003 02:34 ] |
Post subject: | Nýju græjurnar á götunni. |
Eins og venjulega var maður svooolítið (bíllinn minn aðeins ek. 10-12.þús á ári) á ferðinni í dag. Sá tvo glænýja fáka sem kosta samanlagt hátt í lítið einbýlishús. Í hádeginu var ég að keyra yfir í Kópavog og stuttu eftir að ég keyri undir Bústaðavegsbrúna sé ég augu engils stara á mig í baksýnisspeglinum, ég jók hraðann til að geta virt þetta fyrir mér eins lengi og mögulegt væri en nokkrum sekúndum seinna brunaði svarti sleðinn frammúr. Þetta reyndist vera glænýr(keyptur á þessu ári) BMW 530 með krómlistum og sennilega fleiru góðgæti. Þrátt fyrir að vera í dagsbirtu þá engillinn vel áberandi í framljósunum og "gegt" flott eins og sumir af þeim yngri skrifa það í dag. Í kvöld þegar haldið var heim á leið frá íþróttahúsinu Smáranum í Kópavogi, var líka þessi glansandi dökkblái Porsche Cayenne í bílastæðinu. Þar sem ég hafði ekki séð gripinn áður varð ég bara að rölta einn hring kringum hann og dást að gerseminni. Þegar maður horfir á framendann á minnir það mig svolítið á gula upphækkaða SLK-inn sem heimsflakkarinn var á hérna um árið. Verð að segja eins og er að persónulega hefði ég viljað sjá Porsche bara halda sig við sportbílana. |
Author: | bebecar [ Thu 13. Mar 2003 09:14 ] |
Post subject: | |
Ég er nú bara alveg orðin hissa á öllum þessum dýru bílum... ég sá þrjá Cayenne í gær og örugglega sex nýja Range Rover sem kostar nú svipað! Þvílíkt maður! Og PS, það er nýr 530 í götunni hjá mér ![]() |
Author: | Gummi [ Thu 13. Mar 2003 13:12 ] |
Post subject: | |
Ég er alveg sammála ykkur. Í gær var ég að keyra og fékk Cayenne í rassinn á ljósum. Sá sem á þann bíl ætti bara að fá sér eitthvað ódýrara og kraftminna því að hann ók á vinstri akrein á 10 undir hámarkshraða og var ég því fljótur að stinga hann af. Illa farið með hestana. Í sömu ökuferð kom ég í þingholtin og þar mætti ég svörtum nýlegum 911 sem gladdi mig mikið. Og bara svona til að segja frá því líka að þegar ökuferðin mín hófst að þá var ég lagður rétt hjá bláa M5 E-39. Þetta var sem sagt ekki leiðinleg ökuferð. Já á meðan ég man að þá kom ég aftan í nýja svarta 745i bíl á ljósum í geirsgötu um daginn og var hann á sömu leið og ég þannig að ég var lengi að keyra í kringum hann. Ég var í vandræðum við að halda í við hann af ljósunum en það virtist samt ekki vera eins og ökumaður bílsins væri nokkuð að botngefa bílnum. |
Author: | hlynurst [ Thu 13. Mar 2003 14:06 ] |
Post subject: | |
Ég hef keyrt í kringum þennan 745 bíl... djöfull er hann flottur svona í nærmynd. Var reyndar ekki í vandræðum við að halda í við hann en hann keyrði aðeins hraðar en aðrir bílar. Hann ætti heldur ekkert að hafa fyrir því að taka af stað. ![]() |
Author: | bjahja [ Thu 13. Mar 2003 16:34 ] |
Post subject: | |
Eru ekki bara 2 nýjar sjöur þessi silfur og svarti. Mér fynnst þeir mjög flottir. |
Author: | Benzari [ Thu 13. Mar 2003 16:57 ] |
Post subject: | |
Fór frammúr einum á Hellisheiðinni síðasta haust og sá var ljósblár eða blágrár, soldið space-aður bíll. |
Author: | Djofullinn [ Thu 13. Mar 2003 17:04 ] |
Post subject: | |
Mér finnst afturendinn á nýju sjöunum suddalega flottur! |
Author: | hlynurst [ Thu 13. Mar 2003 19:53 ] |
Post subject: | |
Ótrúlegt hvað hann venst vel... þegar maður sá hann fyrst þá vissi maður ekki hvort maður átti að hlæja eða gráta. En oft er það svo að þegar maður er að skoða myndir af bílunum þá virðast þeir ekkert vera neitt sérstakir. Síðan þegar þeir birtast fyrir framan mann og maður getur virt hann fyrir sér þá lítur hann einhvern vegin miklu betur út. ![]() |
Author: | morgvin [ Thu 13. Mar 2003 20:46 ] |
Post subject: | |
það eru samkvæmt gaur í B&L 4 sjöur á götunni 2 silfur og 2 svartar. Pælið í því að Benni seldi 12 cyanne yfir sýningar helgina ruglaða lið. |
Author: | bjahja [ Thu 13. Mar 2003 21:04 ] |
Post subject: | |
Ég er líka alltaf að sjá þessa bíla. Hvað er málið, porsche á að gera sportbíla, ekkert annað. Ég er ekki að fíla Cyanne ![]() Ég meina hvað kemur næst porsche station bíll eða Ferrari fjölnota. |
Author: | Bjarki [ Thu 13. Mar 2003 22:01 ] |
Post subject: | |
Það verður gaman eftir 10 ár þegar maður kaupir sér einn flottan E65 á 600þ ![]() |
Author: | Gummi [ Thu 13. Mar 2003 22:21 ] |
Post subject: | |
Mér finnast sjöurnar mjög flottar þó að það hafi ekki verið það fyrsta sem mér datt í hug þegar ég sá fyrstu myndirnar af þeim. En að sjá bílinn í nálgast úr fjarlægð og að sjá hann svo nálægt er vægast sagt æðisleg upplifun. Bíllinn virkar lítill í mikilli fjarlægð vegna stórra felgna og annnarra útlitseiginleika en þegar nálægt er komið kemur í ljós að hér er á ferðinni enginn millistærðar bíll. ´ það verður spennandi að sjá hvernig bilanatíðnin verður á þessum bílum í framtíðinni. Allt þetta hátækni dót á örugglega eftir að vera dýrt í rekstri. Ég efast ekki um að verkfræðingarnir hjá BMW M séu núna að leggja lokahönd á M7. Ef þessi bíll kemur að þá verður hann eflaust með V12 vélina úr 760i bílnum og ég get vel ímyndað mér tölur nálægt 600hp eða meira. Eða bara að hann fái vélina úr F1 eheh var hún ekki 6 lítra V12 með 612 hp. |
Author: | hlynurst [ Thu 13. Mar 2003 23:34 ] |
Post subject: | |
bjahja wrote: Ég er líka alltaf að sjá þessa bíla. Hvað er málið, porsche á að gera sportbíla, ekkert annað. Ég er ekki að fíla Cyanne
![]() Ég meina hvað kemur næst porsche station bíll eða Ferrari fjölnota. Það hefur nú verið framleiddur Ferrari Station fyrir fursta þarna niður frá... sérframleiddur aðeins fyrir hann. ![]() |
Author: | bjahja [ Thu 13. Mar 2003 23:38 ] |
Post subject: | |
hlynurst wrote: bjahja wrote: Ég er líka alltaf að sjá þessa bíla. Hvað er málið, porsche á að gera sportbíla, ekkert annað. Ég er ekki að fíla Cyanne ![]() Ég meina hvað kemur næst porsche station bíll eða Ferrari fjölnota. Það hefur nú verið framleiddur Ferrari Station fyrir fursta þarna niður frá... sérframleiddur aðeins fyrir hann. ![]() Andsk helv djö ![]() ![]() ![]() ![]() |
Author: | hlynurst [ Thu 13. Mar 2003 23:51 ] |
Post subject: | |
Ég hefði ekkert á móti því að eiga Station Ferrari... lenda við hliðina á einhverri Imprezunni á ljósum. ![]() |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |