Page 1 of 2
BMW blæjubílar?

Posted:
Wed 13. Apr 2005 10:39
by WolfBlitzer
Ég hef verið að athuga með kaup á 3xx BMW blæjubíl, helst þá með V6 vél.
Hafa menn einhverja reynslu af þessum bílum hérna á landi, t.d. er blæjan að endast vel, og þá líka eru góð eintök til á klakanum?
Re: BMW blæjubílar?

Posted:
Wed 13. Apr 2005 10:48
by gstuning
WolfBlitzer wrote:Ég hef verið að athuga með kaup á 3xx BMW blæjubíl, helst þá með V6 vél.
Hafa menn einhverja reynslu af þessum bílum hérna á landi, t.d. er blæjan að endast vel, og þá líka eru góð eintök til á klakanum?
Engir V6 bílar ,
Ég átti svona bíl í 3ár, blæjan var síðan ´87 og því ekki fullkomin, annars var ofur gamann að keyra svona og eiga, ætlaði að spandera í hartop veturinn 2002 en þá kom gamall kall og keyrði á mig, sá bíll er kominn aftur á götuna,
Re: BMW blæjubílar?

Posted:
Wed 13. Apr 2005 10:55
by Djofullinn
WolfBlitzer wrote:Ég hef verið að athuga með kaup á 3xx BMW blæjubíl, helst þá með V6 vél.
Hafa menn einhverja reynslu af þessum bílum hérna á landi, t.d. er blæjan að endast vel, og þá líka eru góð eintök til á klakanum?
Það eru Línu 6-ur í BMW ekki V6
Mæli með bílnum sem Arnib er að selja:
http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?t=8486

Posted:
Wed 13. Apr 2005 10:57
by arnib
Ég á svona bíl og hef því ansi mikla reynslu.
Blæjan er súper góð, hef ekkert þurft að gera fyrir hana og hún lekur ekki dropa.
Aftur á móti eru þéttikantar yfir gluggunum sem er gott að skipta um, mínir dropa þegar það er hellidemba.
Þeir kosta þó blessunarlega ekki nema um 8000 kr. stykkið.
Ef þú ert að velta fyrir þér E30, þá eru 3 á götunni eins og er (dökkblár, svartur (minn) og hvítur (Alpina)). Einn til viðbótar að koma ef hann er ekki þegar kominn, en það er bíllinn sem hann Gunni gstuning átti.
E36 eru að því ég best veit: grænn 318 í eigu fullorðinnar konu, blár M3 í eigu Matta, og einn silfur 325i.
Veit ekki til þess að það séu neinir nýrri.
Þessir bílar eru algjör snilld.
Það er góð miðstöð í þeim, svo manni verður engann veginn kalt þó að hitinn sé ekki mikill úti, en reyndar getur verið ansi kalt fyrir farþegana aftur í bílnum ef það er kalt úti.
Vissulega fyrir aðstæður eins og ísland væri snjallt að eiga harðtopp, en það breytir þó ekki því að blæjan þolir frostið og snjóinn ágætlega.

Posted:
Wed 13. Apr 2005 11:08
by Djofullinn
Líka til einn grár 325i E36. Með forljótri framsvunt og M3 sílsum ef ég man rétt.
*Edit
Fann hann á bílasölur.is
http://www.bilasolur.is/Main.asp?SHOW=C ... %20IS%20BLÆJA&ARGERD_FRA=1993&ARGERD_TIL=1995&VERD_FRA=1550&VERD_TIL=2150&EXCLUDE_BILAR_ID=113357

Posted:
Wed 13. Apr 2005 11:11
by gunnar
Ohh já þetta er nú meiri haugurinn, ég hef ekki séð þennan bíl nema á hvínandi botni.. og yfirleitt með einhvað nýtt brotið, núna seinast annar hurðalistinn

Posted:
Wed 13. Apr 2005 11:14
by grettir
gunnar wrote:Ohh já þetta er nú meiri haugurinn, ég hef ekki séð þennan bíl nema á hvínandi botni.. og yfirleitt með einhvað nýtt brotið, núna seinast annar hurðalistinn
Og ekki er hann gefins


Posted:
Wed 13. Apr 2005 11:15
by WolfBlitzer
Takk fyrir upplýsingarnar.
Ég er að athuga með svona bíl sem annan bíl. Á Forester XT fyrir.
Það parkeraði einn blásilfurlitaður E3 í götunni hjá mér fyrir stuttu, með örlítið skemmt bretti. Ung stelpa sem á hann að ég held sem fylgdist áhyggjufull með mér á meðan ég skimaði í kringum hann leitandi að vélarstærðinni.
Edit: Þessi sem Dj* bendir á.

Posted:
Wed 13. Apr 2005 11:24
by WolfBlitzer
Þessu tengt.
Þið sem hafið prófað: Er mikill munur á vélarhljóði og aksturstilfinningu á milli 325 og 330?

Posted:
Wed 13. Apr 2005 11:25
by Dori-I
forljót?
þetta er E46 frammstuðari.. kemur original á coupe..
allvegg einsog á mínum


Posted:
Wed 13. Apr 2005 11:26
by jonthor
Annað sem þú þarft að gera ráð fyrir: Bílarnir eru dýrir!
Þú getur alveg gert ráð fyrir því að þurfa að borga 30-50% meira fyrir blæju en sambærilegan bíl án blæju. Bæði voru þeir ~30% dýrari þegar þeir voru nýir og eru nokkuð sjaldgæfir.

Posted:
Wed 13. Apr 2005 11:30
by Djofullinn
Dori-I wrote:forljót?
þetta er E46 frammstuðari.. kemur original á coupe..
allvegg einsog á mínum

SRY
Sagði þetta áður en ég fann bílinn á bilasolur.is
En hann er forljótur á E36


Posted:
Wed 13. Apr 2005 11:32
by gunnar
Þessi bíll er bara illa heppnaður, stuðarinn kemur illa út, felgurnar passa ekki við hann finnst mér, afturljósin eru viðbjóður, m ristarnar eru hroðalegar..
Margt slæmt við þennan bíl.

Posted:
Wed 13. Apr 2005 14:37
by Thrullerinn
Ég held að það sé ekki komið fram að það er einn grænn árg. 94 eða
eitthvað álíka, 318 eða 320. Örugglega fínt eintak.. Man eftir því að ég
óskaði einu sinni eftir blæjubíl í DV og eigandi þess bíls var sá eini sem
hringdi

Þetta var fyrir mörgum árum..

Posted:
Wed 13. Apr 2005 15:29
by iar
Thrullerinn wrote:Ég held að það sé ekki komið fram að það er einn grænn árg. 94 eða
eitthvað álíka, 318 eða 320. Örugglega fínt eintak.. Man eftir því að ég
óskaði einu sinni eftir blæjubíl í DV og eigandi þess bíls var sá eini sem
hringdi

Þetta var fyrir mörgum árum..
Er þetta ekki sami bíll og Árni talar um?

arnib wrote:E36 eru að því ég best veit: grænn 318 í eigu fullorðinnar konu