bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Stöndum saman
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=10038
Page 1 of 2

Author:  Porsche-Ísland [ Mon 11. Apr 2005 17:12 ]
Post subject:  Stöndum saman

Á Bylgjunni www.bylgjan.is er í dag skoðunnarkönnun um hvort setja eigi hraðatakmarkar í bíla. :evil:

Stöndum saman og svörum þessu allir neikvætt. :!:

Author:  gunnar [ Mon 11. Apr 2005 17:15 ]
Post subject: 

Merkti við NEI!

Helvítis kjaftæði.

Author:  Djofullinn [ Mon 11. Apr 2005 17:24 ]
Post subject: 

Ef þetta kjaftæði yrði þá myndu banaslysum fjölga.

Ég held ég mundi bara hreinlega flytja úr landi :evil:

Author:  Bjarki [ Mon 11. Apr 2005 17:32 ]
Post subject: 

Er þetta ekki bara eitthvað rugl sem verður aldrei af veruleika. Margt annað sem mætti laga áður en keyptir yrði hraðatakmarkarar í alla bíla.
Menn eru vitsmunaverur og það á að vera hægt að kenna þeim hluti, bara nota réttar aðferðir. Þetta virðist umferðarstofa ekki átta sig á með myglaðan gaur í fararbroddi (Sigurð Helgason) sem þylur alltaf upp sömu rulluna í útvarpinu. Dæmigerður gaur sem gerir lítið annað en að fá laun frá ríkinu. Kasta endalausum fjármunum í auglýsingar sem eru ýmist bannaðar eða valda hneykslun og blaðaskrifum. Hvergi jafn margar hraðahindranir þar sem ég hef keyrt um eins og á Íslandi. Víða í sveitum þá eru notaðar rafmagnsgirðingar til að halda búfénaði innan girðinga, dýrin eru ekki jafn greind og mennirnir en þau læra ef þau meiða sig að láta girðinguna vera. Ökumenn læra að fara ekki of hratt yfir hraðahindranir því það er óþægilegt en þeir eiga að keyra á réttum hraða því sá hraði er settur m.v. aðstæður. Allir keyra 10km yfir hámarkshraða því þeir vita að þeir verða ekki teknir og álíka hugsunarháttur. Náttúrlega ástæður fyrir hámarkshraða. Löggan liggur í leyni á kvöldin og þá þarf að passa sig að fara ekki of hratt þegar engin umferð er en á daginn þá eru þeir örsjaldan að mæla því þeir þyrftu sennilega að taka alla!
Persónlugea finnst mér þessi hugmynd vera algjört kjaftæði.
Hvað deyja margir í umferðinni á ári ef ekki eru teknir með þeir sem eru ekki fullur, ekki í beltum og ekki með bíla öryggisþætti bílsins í lagi. Það væri áhugavert fyrir menn eins og mig að fá að vita það. Kannski er umferðin ekki jafn hættuleg fyrir þá aðila sem fylla þennan hóp Þráin væri að öllum líkindum lifandi ef hann væri í þessum hópi.
Ég hef aldrei ollið tjóni og 1x verið tekinn af löggunni á 7 árum þannig þetta er e-r biturleiki :D

Author:  grettir [ Mon 11. Apr 2005 17:37 ]
Post subject: 

Þetta er ekki eina bullið sem er í gangi. Nú vilja þeir líka (eða hvort þetta verður í sama tækinu) setja gps græju í bíla til að rukka vegskatt og þá verður greitt eftir notkun, þ.e.a.s. hægt verður að sjá hvert maður hefur farið á bílnum. Björn Bjarnason myndi breyta þessu í lögregluríki ef hann fengi ráðið.
Ég veit ekki betur en að það sé þegar rukkað nokkurn veginn eftir notkun, það er að segja pr. bensínlítra. Það skyldi þó ekki vera að krónurnar sem eru hirtar af bensínlítranum séu ekki notaðar í vegaframkvæmdir?!

Vitiði til, bíleigendur verða látnir borga tækið, krónutala pr. kílómeter verður hækkuð hægt og bítandi, áfram verður bifreiðagjald og þeir koma til með að hirða sínar "veggjaldakrónur" á hvern seldan bensínlítra.

Það virðist alltaf vera þannig að ef ríkinu vantar pening, þá er farið í vasa bíleigenda.

Ég held ég myndi flytja með Djöflinum úr landi ef þetta gengur í gegn.

Author:  gstuning [ Mon 11. Apr 2005 17:53 ]
Post subject: 

Ég myndi flytja úr landi

Author:  Haffi [ Mon 11. Apr 2005 18:18 ]
Post subject: 

Ég kæmi með ykkur piltar!

Author:  Bjarki [ Mon 11. Apr 2005 18:25 ]
Post subject: 

Ég líka þannig við erum orðnir 5.

Author:  BMWaff [ Mon 11. Apr 2005 18:50 ]
Post subject: 

hvert mundum við þá helst fara? Sól og blíðu mundi ég kjósa 8)

Author:  Djofullinn [ Mon 11. Apr 2005 18:58 ]
Post subject: 

Ég mundi fara til þýskalands eða "heim" til ítalíu :) Sum norðurlöndin eru reyndar nokkuð kúl

Author:  Svezel [ Mon 11. Apr 2005 19:21 ]
Post subject: 

búa bara á Nürnburgring :P

Author:  gunnar [ Mon 11. Apr 2005 19:23 ]
Post subject: 

Svezel wrote:
búa bara á Nürnburgring :P


I like that, smíðum lítinn kofa með beddum og bílskúrs aðstöðu and were good to go 8)

Author:  BlitZ3r [ Mon 11. Apr 2005 19:51 ]
Post subject: 

dagurinn sem þetta myndi verða leitt í lög væri dagurinn sem ég myndi panta mer einn farmiða með norrænu fyrir mig og mínar eigur

Author:  bebecar [ Mon 11. Apr 2005 20:06 ]
Post subject: 

HVA!!! Þið lúffið ekkert, þið eruð kjósendur og þrýstihópur :wink:

Ég verð MAD MAX 8) Lúffa sko ekki neitt!!!

Image
Image

Author:  gunnar [ Mon 11. Apr 2005 20:07 ]
Post subject: 

Efri myndin er bara 8)

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/