Offramboð á BMW á Íslandi
Mér sýnist, m.v. hvernig virðist ganga að selja BMW hjá þeim sem eru á spjallinu, að það sé talsvert offramboð á BMW bílum á Íslandi. Markaðurinn er reyndar þannig að það er erfitt að selja, en margir góðir bílar eru hér (og annarsstaðar) til sölu í meira en sex mánuði!
Ég verð að segja að mér finnst margir gjörsamlega að tapa sér yfir því að flytja inn BMW. Ég sé ekki betur en að verðið hafi þróast í samræmi við offramboðið og að það sé hægt að gera mjög góð kaup á Íslandi.
Þeir sem eru að hugsa um að flytja inn ættu líka að velta því fyrir sér að því fleiri sem flytja inn því meira eykst offramboðið heima. Ég held því að menn ættu að hugsa sig tvisvar um og skoða markaðinn mjög vel heima áður en flutt er inn, jafnvel þó að krónan sé svona sterk. Á einhverjum tímapunkti er hreinlega orðið ódýrara að kaupa bíl heima. Ég sé ekki betur en sá tími sé kominn, amk með nokkrar undirtegundir.