Page 1 of 3

M3 felgur

PostPosted: Sun 10. Apr 2005 03:41
by gunnar
Getur einhver sagat mér nafnið á þessum felgum?

Image

Image

Eru þetta mjög dýrar felgur ? Og hvar er hægt að panta þetta.. Bara forvitni.

PostPosted: Sun 10. Apr 2005 03:56
by gunnar
Eins ef þið vitið hvar ég get nálgast felgu "bækling" frá bmw á netinu, sá þetta nú einhvern tímann á kraftinum en er ekki að finna þetta í leitinni.

PostPosted: Sun 10. Apr 2005 04:35
by gunnar

PostPosted: Sun 10. Apr 2005 05:52
by xiberius
Eru þessar efstu ekki til hjá TB? Sýnist þetta allavegana vera þær á síðunni hjá þeim, nánar tiltekið hérna c.a. rétt fyrir neðan miðja síðu inní "Álfelgur og dekk"... (virðist ekki vera hægt að linka á það beint, ég reyndi... :?)

ÁLFELGUR 17" M3 motorsport design
DEKK 225/45HR17
Vörunúmer: M3SP17E3646
Kr. 179.860 sett

PostPosted: Sun 10. Apr 2005 06:11
by gunnar
Jahá, ekki nema 180 þúsund kall....

PostPosted: Sun 10. Apr 2005 09:26
by fart
http://zoouz.free.fr/wheels.htm

Felgurnar heita Style 24 er það ekki.

Finnst ansi líklegt að orginallinn kosti meira en 180k og það bara felgurnar.

PostPosted: Sun 10. Apr 2005 09:51
by iar
gunnar wrote:Eins ef þið vitið hvar ég get nálgast felgu "bækling" frá bmw á netinu, sá þetta nú einhvern tímann á kraftinum en er ekki að finna þetta í leitinni.


Fart kom með tengil á góða síðu en svo getur þú líka kíkt í verslunina hjá B&L. Þeir eru með lítinn og nettan bækling með lista yfir felgur, gamlar og nýjar.

PostPosted: Sun 10. Apr 2005 11:12
by gstuning
gunnar wrote:Jahá, ekki nema 180 þúsund kall....


:)

Þegar þú verslar felgur á BMWinn þinn þá kaupirru ekki eitthvað rusl.

180kall fyrir "17 er þokkalega fínt bara

PostPosted: Sun 10. Apr 2005 11:44
by Svezel
Finnst þessar felgur alveg einstaklega flottar og 180k fyrir flotta 17" + dekk er ekki mikið

PostPosted: Sun 10. Apr 2005 12:13
by gunnar
Já, þessar felgur fara undir næsta bíl...

Ég er búinn að hafa augastað á þessum felgum í langann tíma og ég mun versla mér svona felgur... Notaðar eða nýjar..

PostPosted: Sun 10. Apr 2005 12:54
by Djofullinn
Held að þær kosti yfir 50 þús kall stk orginallinn hjá B & L :) Þannig að þetta verð er nú ekki mikið

En þú getur pottþétt fegið þær ódýrari á ebay

PostPosted: Sun 10. Apr 2005 12:58
by gunnar
Djofullinn wrote:Held að þær kosti yfir 50 þús kall stk orginallinn hjá B & L :) Þannig að þetta verð er nú ekki mikið

En þú getur pottþétt fegið þær ódýrari á ebay


Ætli það endi ekki með að maður kaupi þær af ebay.

PostPosted: Sun 10. Apr 2005 13:02
by Djofullinn
Þetta eru orginal. Og bara 14 tímkar eftir. Þetta verð er bara djók sko

http://cgi.ebay.com/ebaymotors/ws/eBayI ... eName=WDVW

PostPosted: Sun 10. Apr 2005 13:47
by Farinn
Enda er enginn kantur eftir á þeim! búið að slipa allan kantinn af þeim skv myndunum!

Kveðja

PostPosted: Sun 10. Apr 2005 13:53
by Djofullinn
Björgvin wrote:Enda er enginn kantur eftir á þeim! búið að slipa allan kantinn af þeim skv myndunum!

Kveðja

Pfff þetta er nú ekketr svo slæmt. Ein felga þarna sem er orðin soldið ljót