by íbbi_ » Fri 22. Apr 2011 11:15
já það kæmi nú pottþétt engin ræða frá þér hérna ef bílasali kallaði þig fávita.. og réttlætti það svo með að hann væri bara heiðarlegur maður og væri að segja satt?
auðvitað vita allir samt um hvaða týpu er verið að tala, hef að sjálfsögðu kynnst svona mönnum sjálfur, unnið með þeimn og lent á þeim í viðskiptum, en mér finnst samt fyndið hvað menn úthrópa alltaf bara heila starfstétt sem fávita þegar þeir fengu ekki það sem þeir vildu á 1-2 stöðum,
það er jú vitað að áhveðnar týpur sækja í svona störf, líka fasteignasöluna, en það þarf ekki að gilda um alla, veit ekki betur en einn af heldri bílasölum bæjarins sé bara mjög vel liðinn hérna inni og búinn að vera aktívur hérna lengi.
ég get alveg tekið undir þau sjónarmið að bílasölur þyrftu í raunini ekki að vera til, enda einn af þeim sem nánast undantekningarlaust sel eða kaupi bara beint við aðilan og sé ekki tilganginn í að vera borga 3ja aðila, en það eru bara ekki allir þannig, sumir meirasegja harðneita að selja eða kaupa nema í gegnum sölu, og svo er bara ennþá fullt af liði sem rúntar um bílasölurnar sér til skemmtunar (þ.a.m ég) og það verður alltaf til þess að einhverjir af þeim seljast,
ef menn eru mikið að hafa samband við sölurnar þá er fljótt að koma í ljós hvaða menn maður vill skipta við og hverja ekki.. eins og allstaðar annarstaðar,
annars veit ég ekki af hverju ég er að tjá mig um þetta, er ekki bílasali og hef ekki keypt eða selt bíl á bílasölu í orðið nokkur ár, á samt varla orð yfir hegðun sumra hérna inni, sem eru að úthýsa einhverjum og í leiðini lýsa svo skammarlaust yfir svo heimskulegri hegðun frá eigin garði í garð þeirra sem þeir eru að hrauna yfir að ég get ekki ýmindað mér hvernig þeir gátu ætlast til þess að fá góða þjónustu til baka,
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll