IMHO þá er það ekki gáfuleg ákvörðun að láta 17 ára strák fá M5 sem fyrsta bíl.
Hann hefur hvorki þroska né reynslu til að keyra þennan bíl dags daglega og standast þær freistingar sem hann býður uppá.
Til hvers að fá sér svona bíl nema til þess að taka eitthvað á honum?
Þannig að ef hann fær sér svona bíl þá verður tekið á honum og strákurinn hefur bara ekki þá æfingu og þroska sem til þarf.
Nú ef hann ætlar ekki að taka á honum þá getur hann bara fengið sér 523 með M looki og eytt mismuninum í að hafa gaman af lífinu
PS. Ég veit alveg að það eru margir ungir kappar hérna sem froðufella við að sjá svona komment um reynslu og þroskaleysi. Mönnum finnst þeir vita allt og geta allt þegar þeir eru 17-18 en þeir munu komast að öðru þegar þeir eldast

Þó svo að ég sé einmitt á þessum aldri sem þú talar um þá er ég alveg 100% sammála þér. Það er ekkert vit í því að menn með litla reynslu séu að keyra svona bíla sem fyrsta bíl, þó svo að öðrum kraftsmönnum finnst kannski ekkert að því..