ég hef átt E39 540,E32 735i,E38 730i og E36 318is í snjó og vetrarfærðum,
540 bíllinn var frekar heftur, stífa fjöðrunin fúnkeraði ekki nógu vel í hálku stundum, en samt hægt að nota hann alla daga sem venjulegir fólksbílar voru nothæfir yfir höfuð,
E38 bíllinn var frábær, ég var með hann á breiðum og belgmiklum vetrardekkjum og hann var bara eins og skriðdreki, sama saga með E32 bílin
E36 318is var FRÁBÆR. á sóluðum vetrardekkjum og læstur að aftan, þessi bíll óð snjó eins og veit ekki hvað, BESTI fólksbíll sem ég hef notað í snjó,
varðandi fwd vs rwd í snjónum, þá ætla ég að segja að það sé ekki myth að fwd séu almennt betri við þessar aðstæður, heldur er myth að rwd bílar geti ekkert í snjó,
fwd bílarnir eru nú yfirleitt seigari í að krafla í snjónum en rwd bílar, enda er rwd bíllinn að reyna ýta bílnum í gegnum skafl, en hinn að toga hann,
helstu vandamál rwd bíla að vetrarlagi eru ökumennirnir, fwd bílarnir eru meira idiot proof og yfirleitt hægt að keyra þá í flest öllu rólega og slysalaust, understeer hegðunin er samt stórhættuleg og vanmetin, hversu margir ætli að sé búnir að stúta bíl v/þess
afturdrifs bílarnir eru meira tricky, fólk er hrætt við tilhneiginguna í þeim til að byrja snúast ef þeir missa grip, mér persónulega hefur samt fundist þeir hafa haft margt framyfir í hálku, eins og t.d að geta alltaf beygt nánast.. ef maður getur beygt þá getur maður yfirleitt frekar reynt að bjarga sér eitthvað, þó það sé ekki nema jafnvel til að keyra á eitthvað annað en það sem maður keyrði nánast á, það getur stundum verið betra

annars er ég á sonötu þessa dagana, kostaði mig undir 30k, keypti vetrardekk í vöku á 6þús, hún er eins og hún sé hækkuð um 5" að framan og hlær af snjó og hálku