Jæja - fyrsti dagur að baki.
Byrjuðum morguninn á Volvoinum hjá Hilmari og breytti kallinn honum úr
dísilbíl yfir í bensínbíl (allavega upplifun ökumanns)....
Nú strumpast bíllinn úr sporunum og skilur alla eftir (í reykjarmekki).
Vinnslusviðið orðið mun breiðara og meira afl.
Á eftir honum kom Óli á OPC (BUZY). Ásar voru mappaðir inn ásamt
öðru smálegu og fór Óli skælbrosandi burtu eftir þetta. Ætti að gera
góða hluti fyrir norðan.
E65 745 var næstur í röðinni. Þar átti að slökkva á check engine ljósi út
af hvarfakútum sem orðnir voru daprir (í staðinn fyrir að kaupa þá á
300.000+ kr). Einnig var bíllinn þannig að ef honum var gefið í botn þá
datt hann í limp mode og þurfti að drepa á honum og starta aftur til að
keyra. Þetta var lagað ásamt því að gefa honum auka power.
Að endingu var það Gunni (Kull) á MB C32 AMG Carlsson. Kom í ljós að þeir Carlsson
menn höfðu læst mappinu en eftir smá bras náði karlinn að brjóta upp
læsinguna. Kom þá í ljós að ekki var mikið búið að eiga við mappið - aðeins
breyta næmninni á gjöfinni - svipað og "sport" takkinn gerir á E39 M5.
Eftir að búið var að setja nýtt mapp inn var bíllinn orðinn allur mun sprækari
og þurfti nú að slökkva á spólvörninni því hún var að kikka inn á ólíklegustu
tímum

Held að Gunni hafi bara verið sáttur.
_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR

Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...