bimmer wrote:
Ingvar - er ekki lang ódýrast að tala bara um þessa bíla í
stað þess að actually eiga þá??

Quote:
Er það ekki frekar öfugt, E39 M5 þarf ekkert nema undirskrift hinsvegar þarf að eiga pening fyrir E34 M5 Wink
Nákvæmlega... alveg sammála því. Það þarf bara að geta borgað af láninu til að "eignast" E39 M5, það þarf hins vega að eiga pening til að eignast E34 M5
Quote:
Maður kemst samt ekki hjá því að fá það á tilfinninguna að E39 M5 sé í sífelldum vandræðum með að halda sér á götunni, kúplingar, bremsur, skynjarar o.s.frv. Maður hefur lúmskan grun um að margir þessara bíla eyði drjúgum tíma bilaðir - er einhver hér sem þorir að ljóstra upp um hver rekstrarkostnaðurinn er á E39 M5 á ári?
Ég er nú samt ekki sammála þessu. Ég held að þessir bílar séu ekkert meira bilaðir en E34. Hins vegar eru 30 stykki hérna... og eru að lenda í höndunum á pappakössum sem fræsa hægri og vinstri án þess að vita hvað þeir eru með í höndunum
Ég er nú búinn að eiga minn í hvað... 1 og 1/2 ár og hef þurft að endurnýja hjólalegu og bensíndælu. Man ekki eftir öðru. Annað hefur bara verið viðhald eins og loftskynjarar, dekk og slíkt. Þetta er enginn FIAT, solid og góðir bílar.