íbbi_ wrote:
uppreisn æru? hreint ekki!!
álit mitt sem hefur alltaf verið mikið, og litið upp til sumra,
sorry sæmi en það er bara það sem mér finnst, það sem ég er búinn að fá mig fullsaddan af mönnum sem eru að setja út á hvernig maður reynoir að sjá fyrir sér og sínum, sona var bara landið og eftir því lék maður, svo þegar það menn spurja brosandi hérna hvort það séu öruglega ekki allir nema þeir búnir að drulla upp á bak og allt í kássu, og maður segir nei þá er manni sagt að bíða fram á vor? ég les ekki annað úr því en að það hlakki til í mönnum yfir því líka..
við fljúgum ekki allir júmbó þotum og getum sótt draumabílana í réttum lit þvers og kruss um heiminn,
Halló halló.
Ég skynja mikla gremju í minn garð.... ásamt fordómum. Þessu kommenti mínu um að bíða þangað til í vor hefði kannski alveg mátt sleppa, ég setti þetta nú bara þarna í gríni vegna þess að þú ert með allt þitt á hreinu og þarft ekki að hafa neinar áhyggjur. Ég myndi aldrei segja svona nokkuð við einhvern sem væri illa staddur, hef ekkert gaman af því að hlakka yfir óförum annarra og vandræðum.
Mér er sko satt að segja algjörlega sama hvernig þú ert að reyna að sjá fyrir, eða sérð fyrir þér, ég hef aldrei verið að reyna að stjórna því! Ég reyni að miðla af reynslu minni og þeirri litlu visku sem kannski leynist í kollinum á mér, ekki það að ég sé í einhverju missioni eða hafi verið á kraftinum.
Varðandi það að ég sé að fljúga júmbó þotum og ná í draumabílana hingað og þangað... þá finnst mér eins og það sé verið að gera að því skóna að ég hafi það eitthvað betra en aðrir. Ég hef ekki fengið neitt upp í hendurnar í mínu lífi hingað til og reikna ekki með því í framtíðinni.
Starfið mitt gefur engin ofurlaun ef þú heldur það. Flugmaður hjá Icelandair sem hefur unnið þar í 4 ár er með sömu laun og sölumaður hjá parketverslun hér í bæ. Þetta hef ég frá fyrstu hendi. Við höfum heldur engin tök á að bæta við okkur aukavinnu til að auka tekjurnar eins og margir aðrir geta gert. Ég er ekki að kvarta yfir launum mínum eða starfi, en ég veit fyrir víst að það hafa flestir iðnaðarmenn hér á landi möguleika á að hafa sömu innkomu og ég hef - eða meiri.
Þess utan þá flýg ég nú ekki júmbó þotu, ég er ekki svo sver spaði. Ég flýg ekki einu sinni breiðþotu dags daglega

Held það hafi líka lítið að gera með hvort ég geti eignast draumabílana mína í réttum litum. Það kostar næsta mann c.a. 5-15þúsund meira í fargjald til evrópu, 10-30þús meira til ameríku að fara erlendis til að velja sér draumabílinn sinn... í réttum lit líka! Held það hafi lítið að segja þegar heildarreikningurinn er skoðaður. Ég er bara svo skrítinn að ég vil frekar fara sjálfur og ganga úr skugga um að bílarnir séu í lagi þegar ég kaupi þá, heldur en að notfæra mér þjónustu annarra.
Ég hef hins vegar verið varfærinn með peningana mína og gætt að því að byggja upp eigur en ekki safna skuldum. Það er kannski það sem ég er að reyna að benda öðrum á, að það borgar sig ekki alltaf að taka lán til að geta eignast flottan hlut núna, því þá getur þú ekki bætt við þig öðrum seinna því þá verður þú notandi peninginn til að borga lánið af hlutnum sem þú átt í það skiptið. Það tekur lengri tíma að eignast draumabílinn eða hvað sem við á með að eiga fyrir því, en mér finnst það skynsamara að spara við sig fyrrihluta lífsins til að njóta þess frekar seinnihlutann. Það er það sem mér finnst unga fólkið nú til dags ekki vera að gera. Það tekur allt á lánum og eignast aldrei neitt, en það nýtur alls. EN SVO þegar árar eins og núna, þá getur því miður farið illa fyrir þeim sem hafa spennt bogann of hátt. Sem betur fer eru flestir færir um að ráða við hækkanirnar sem ganga núna yfir og það er frekar til þeirra sem ég er að skrifa þessar línur. Ég er að segja við ykkur... reynið frekar að gefa ykkur lengri tíma í að eignast dýrari hluti. Ekki vera að "kaupa" ykkur hluti sem þið í raun hafið ekki efni á eins og er. Bíðið frekar aðeins lengur og látið duga að hafa draumabílinn aðeins ódýrari.
Bílarnir mínir hafa ekki kostað neina svakalega fúlgu hingað til. Ég skal reyndar viðurkenna að eins og staðan er núna, á meðan ég á bæði E39 M5 og X5 þá er þetta vel á sjöundu milljón. Það er slatti af pening! Þess vegna vil ég helst losa mig við M5 bílinn minn því mér finnst þetta bara ferlega mikill peningur. Ókei, ég er kannski ekki með bílalán á þessum bílum, en ég er með húsnæðislán sem ég gæti lækkað með þessum pening og það er meira vit í því finnst mér.
Ég hef byggt upp bílaeign mína hægt og hægt, það var ekki fyrr en með E39 M5 sem ég fór yfir 1.3 milljón í bílakaupum. Það var þegar ég var 32 ára gamall. Hversu margir hér inni láta sér nægja bíl undir því fram að þeim aldri???
Að lokum vil ég bara segja að ég vorkenni og finn til með þeim sem þurfa að herða ólina núna, ennþá meira þeim sem eru í vandræðum. Þetta eru ekki góðir tímar núna og vonandi fer þetta að stíga upp á við bráðum. Ég sjálfur verð í vandræðum ef þetta heldur svona áfram, því ég þarf að byggja mér hús og það er ekki gott að fá lán eins og staðan er í dag. Þannig að ég er ekkert að vona að þetta verði svona áfram, síður en svo.
Peace
