Ohh ég er svo sammála þér Zazou.
Er búinn að keyra um á vísitölutík síðan ég klessti Benzann í sumar og fannst lítið varið í það að fara út og keyra og hafði ekkert gaman af því.
Svo er ég búinn að vera núna á Infiniti G35 og jesús kristur hvað það er búið að vera gaman. Drekkur duglega en manni er alveg sama á meðan maður nánast grét þessa dropa sem fóru í Primeruna.
Get ekki beðið eftir því að komast og klára BMW-inn. Ekki það kraftmesta en verður eflaust bara þægilegt í akstri.
