Angelic0- wrote:
DIESEL DIESEL DIESEL

Ég vill meina að diesel borgi sig EKKI á Íslandi nema í miklum akstri.
- Það er dýrara innkaupsverðið á diesel bílum.
- Það er dýrara að versla diesel olíu
- Það er dýrara að eiga og þjónusta diesel bíla
Ég tók niður fyrir verkefni í HA hjá mér rekstur bensín og dísel bíla sem eyddu frekar ójöfnum tölum. (Diesel 5 og bensín 7-8).
Það tekur alveg gígantískan tíma að spara þessa peninga upp. Og að mínu mati ef maður er að fara í bíl sem kostar 300 þúsund þá er þetta bara engan veginn þess virði.
Ég var í sömu sporum og Skúli fyrir nokkrum mánuðum. Ég vildi ekki eiga BMW sem daily driver þar sem ég átti alveg nóg með E30 bílinn hjá mér. Ég keypti mér Toyotu Corollu Xli 94' keyrða 200k~. Skipti um tímareim, bremsudiska og nokkra smá hluti og bíllinn stendur mér í einhverjum 150k. Hann bilar ekki, fer í gang og er bara fínasta "áhald" eins og ég lít á hann sem.
Bara mín sent.
svo má keyra þessi ógeð á jurtaolíu og steikingarfeiti með smá breytingum, eina vitið í "kreppunni"