Það geta náttúrulega verið óttalegir haugar sem eru boðnir upp á Vökuuppboðum. En inn á milli birtast mjög áhugaverðir bílar.
Ég fór á öll uppboð á tímabili (þó ég hafi reyndar bara 2 eða 3 keypt bíl) og ég man eftir nokkrum "þekktum" BMW sem hafa verið boðnir upp þarna.
T.d.:
Alpina B10 Bi Turbo (núverandi Sean)
E36 M3 Cabrio (þessi sem er núna á Skaganum)
Gamli bílinn hennar Ingsie
Ég keypti 735i bíl þarna árið 1999 á 270þ. sem var bull lágt þá. En hann var líka óttalega ósnyrtilegur. Sá sem keypti hann af mér til að gera upp eyddi miklu í að gera hann góðan en mér skildist að mótor og skipting hafi verið fín.
Þarna kaupir maður bíla í því ástandi sem þeir eru og þú hefur ENGAN rétt á að "skila" bílnum. Þeir láta vita ef þeir vita að eitthvað er að bílunum en oftar en ekki vita þeir lítið og því engar upplýsingar gefnar.
Maður verður því alltaf að gera ráð fyrir því versta og bjóða í samræmi við það. Sem þýðir reyndar oftast að aðrir bjóða meira
