Bílalán og önnur lán eru allavega þess eðlis að best er að stíga varlega til jarðar.
Ég ætla nú ekki að dæma um hvort hlakki í mönnum eða ekki en oft er stutt í öfundsýkina og hangir þetta tvennt saman.
Hinsvegar - þá er kannski aðal atriðið að mínu mati það að stíf lántaka, hvort sem það er á bíl, húsnæði eða vegna neyslu er lítið annað en nútíma þrældómur. Það kemur hinsvegar ekki í ljós fyrr en á reynir - því miður.
Af þessari ástæðu er gott að spenna bogann ekki um of.
Svo er ástandið síður en svo einskorðað við Ísland, fólk hér í DK er tiltölulega nýbúið að uppgötva nútíma neyslulán og þarf að súpa seyðið af því þegar t.d. fasteignir lækka í verði, bílar reynast illseljanlegir og fólk situr uppi með það að borga af öllu heilaklabbinu. Í því felst þrældómurinn. Sem betur fer eiga sumir þrælar góða húsbónda sem leysa þá fyrir rest undan okinu, en því miður eru ekki allir svo heppnir.
Það hefur verið forvitnilegt að fylgjast með þessu ástandi úr fjarska. Margir hér á spjallinu eiga orðið MARGA bíla en þó er yfirleitt bara um að ræða venjulega launamenn og konur, ekki auðkýfinga (bíladellan er auðvitað dýr

)
Það eru til önnur lífsgæði og kannski full ástæða til að leita þau uppi þegar ástandið er svona (þó svo auðvitað þurfi í það minnsta einn góðan bíl til að halda geðsmunum!).
Bottom line er að líklega hafa flestir hugsað sér eitthvað worst case scenario... hugmyndaflugið hefur svo skort til að ímynda sér núverandi stöðu sem getur jafnvel orðið enn verri og getur ástandið varað í mörg ár!
Ég held reyndar að þeir sem keyptu sér marga bíla á lánum séu nú bara að blæða fyrir enn meiri eyðslu þeirra sem stýra fjármálageiranum - kannski ekki nema von að menn verði súrir.