bimmer wrote:
Ég legg tvennt til.
1. Á næsta ári taka allir snillingarnir þátt.
2. Á næsta ári verður valið bæði á vegum dómnefndar og svo kosningar
á netinu. Svo verður að finna hvernig vægi dómnefndar vs. kosningar á
að vera (væri allt í lagi 50/50 held ég).
Það er samt svo ótrúlega erfitt að dæma mynd frá fólki sem veit ekkert um ljósmyndir. Það er hægt að dæma þetta á svo marga vegu þá t.d. hvort MÉR finnst myndin flott, eða eftir einhverju professional dæmi þ.e.a.s. myndræni, fókus (eða hvað þetta allt heitir).
Mér finnst fínt að það séu utanaðkomandi aðilar eins og voru í dómnefndinni núna sem dæma myndirnar eftir því hvað þeim finnst flott.
Annars flott framtak að hafa svona keppni -> halda þessu svona að mínu mati.
Annars er ég sammála þér Þórður að snillingarnir verða klárlega að senda inn myndir. Svo má ekki gleyma að því fleiri flottar myndir koma inn því flottari mynd vinnur titilinn og þá getur nú enginn vælt yfir því hvað það var "ljót" mynd í top 3.
Ef það á að fara út í það að dæma eftir einhverju myndrænu"eðli" eða eitthvað svoleiðis þá þarf að hafa samband við einhvern professional ljósmyndara og fá hann til að dæma myndirnar -> en ef út í það er farið að þá vinnur kannski engin mynd?
Kv,
Haukur