fart wrote:Sko.... Eyðslan er gífurleg, og það eru bara harðfiskar sem tala um að maður eigi ekki að fá sér svona bíl ef maður hefur áhyggjur af eyðslu.
Þessi bíll er t.d. glataður ferðalagabíll, þó svo að hann eigi að vera góður. 15l/100 og 70L tankur er bara lítið. Þýðir að maður þarf að stoppa á um 300km fresti til að tanka upp, ef maður vill vera safe.
Minn var að eyða um 27L/100 Innanbæjar, og ég náði honum aldrei niður fyrir 15L/100 á langkeyrslu (á 130-150km/kls) á normal ferðahraða hér.
Svo er auðvitað meira viðhald á V10 heldu en V8, eða I6. Einfaldlega fleiri componentar sem geta bilað.
Minn var vel hlaðinn gizmoum, frábær bíll í alla staði, en dýr í rekstri
1. fuel
2. tryggingar
3. Skatta (mengar 500+g)
4. dekk (fór með afturdekk á 10k km
EN... gæti vel hugsað mér svona aftur. Ég neyddist til að selja minn útaf economic ástæðum aðallega. Dýrt að eiga, vildi hafa cash buffer þar sem að framtíðin var óráðin, og svo átti ég 2 aðra bíla og 3. barn nýfætt og E60 tekur ekki 3 barnastóla afturí
Gjöldin hérna eru ekki nema 2 x 23902
enda CO2 ekki þekkt.
Annars held ég að bifreiðagjöldin fari aldrei yfir 70 þús..



