Eitt sem ber að hafa í huga með að rönna felgur með lágt offset á E46/36 er að þetta getur haft slæm áhrif á heðgðun bílsins og takmarkar mjög þær dekkjastærðir sem má nota. Spurning hversu gaman er að bíl sem lúkkar svaka pimpin en má svo ekkert taka á.
Manni fallast stundum hendur við að lesa þræði á stancework og bimmerforums þar sem menn eru að rönna kannski 17x10 et20 á 215 dekkjum og geta ekki tekið krappa beygju án þess að það komi neistaflug....



