Gunnar Þór wrote:
SteiniDJ wrote:
Það pirrar mig ekkert ef menn vilja leggja skakt, svo lengi sem það er gert á réttum stað. Þú ert ekki að trufla NEINN ef þú leggur skakt lengst í burtu á nánast auðu bílastæði og leggur á þig þetta auka labb. Ég hef gert það sjálfur og geri oft, stundum hafa farþegar í bílnum vælt "ohh, hata þegar fólk leggur skakt!", en hafa þá að sjálfsögðu ekki fengið frekari ferðir í mínum bíl. Fags.
Vorkenni svona liði sem heldur að það sé a svo "merkilegum" bílum að það hafi rétt á að nota tvö stæði meðan öðrum dugar eitt...
Flott hjá þér.
Ég er hinsvegar afar ósammála þér. Ef ég legg á mig að leggja lengst í burtu, þar sem er nánast engan bíl að finna, þá finnst mér ekkert að því að taka tvö stæði. Ætlarðu virkilega að pirra þig á því fólki?
En svo ætla ég ekkert að púðra það neitt, flestir hérna inni eru á merkilegri bílum en "almúginn", ef svo má að orði komast án þess að hljóma kommúnískur. Þeir sem eru í því að hurða bíla er alveg sama um bílana sína og bílinn þinn. Ég var með
vinkonu minni í bíl þegar hún hurðaði svartan benz ILLA. Ég náði ekki að tala hana af því og hún keyrði burt. Ég var ótrúlega pirraður og talaði ekki við hana í langan tíma, en hafði síðan samband við eiganda bílsins og benti honum á hver hafði gert þetta.