Ég verð nú að segja, að þó að það sé hiklaust hægt að halda þessum bílum neðarlega, að þá hef ég aldrei sest uppí 540 sem að hefur verið að eyða undir 16ltr/100!!
Það er alveg rétt að bílar með stórum, tæknilegum, togmiklum vélum þurfa ekki endilega að eyða svo miklu, en ég og nokkrir vinnufélagar mínir eigum E39
2 eiga 523i, einn á 528i, 2 eiga 530i og einn á M5!
523i bílarnir hafa verið að fara með 11-13ltr/100km
530i bílarnir hafa verið að fara með 13-15ltr/100/km
M5 er á milli 18 og 20ltr/100km
nokkrir hafa átt 540i eða haft að þeim aðgang, og þeir tala um 16-18ltr/100km
Þetta eru mestmegnis innanbæjartölur!
En um leið og maður kíkir á kraftinn virðast allir 540i eyða á milli 12-14ltr/100km

Ég hef nú aldrei haldið því fram að minn eyði minna en 16-17 innanbæjar, vissulega gæti ég náð honum neðar en það er bara ekkert gaman að keyra þannig. Hinsvegar fer hann niður í 10 á langkeyrslu ef maður dólar bara á 90-100.