DABBI SIG wrote:
Stanky wrote:
Aron Andrew wrote:
SteiniDJ wrote:
Aron Andrew wrote:
Fáðu bara pabba þinn með þér í tryggingafélgið, aldrei gefa neina sénsa á öðru en viðgerð eða bótum!
Ef þið eruð með hús, aðra bíla, fyrirtæki, bara eitthvað þá um að gera að hóta að hætta viðskiptum ef þeir eru með stæla.
Þegar minn skemmdist þá kom pabbi bara með mér og tryggingafólkið sagði bara já og amen.
Það þarf að koma harkalega fram við þetta lið, það hefur ekki alltaf þína hagi í forgangi.

Þarft ekkert að vera með
dónaskap og leiðindi, bara vera harður á þínu.
Þurfti í mínu tilviki. Ætli það fari ekki bara eftir því í hverni skapi manneskjan er.
Mundi bara að þetta fólk sem vinnur þarna vinnur við það að vera leiðinlegt og anal -> vinnur við það að láta fyrirtækið græða sem mest og það græðir ekkert á því að laga gamlar "druslur".

Rólegir félagar. Þetta er bara svo langt frá því að vera rétt, það er ENGINN hjá neinu fyrirtæki sem VILL vera ANAL eða gera eitthvað ömurlegt fyrir kúnann. Þetta er bara rugl og gömul tugga.
Auðvitað kemur það fyrir að fólk vilji fá eitthvað meira en ég hef líka heyrt FULLT af dæmum þar sem menn eru að fá MJÖG ríflegar upphæðir útúr tryggingum. Þannig að þetta er bara bull að tryggingafélög séu bara eitthvað sem á að gefa skít í. Setjiði ykkur í spor þess sem vinnur þarna. Hann þarf að fara milliveginn á því að meta bíla sem eru kannski vandmetnir, sbr. "eldri" bílar sem einhver myndi kalla druslur, en við sjáum kannski hellingspening í, tala nú ekki um tilfinningalegt gildi og svo þarf viðkomandi að halda þessu innan skynsemismarka, þ.e. að greyða ekki ódýran bíl út á alltof háu verði.
Þannig að róið ykkur á því að drulla yfir þetta lið...
Menn geta lent í slæmum tilfellum og það er alltaf BARA munað eftir þeim, ekki þegar mönnum er gert gott.
Kv. Dabbi
20 ára strákur labbar inn í TM (ÉG).
"Góðan dag, lenti í því óhappi að það var klesst á mig.....ég í 100% rétti - hérna er skýrslan (Rétti honum skýrsluna."
35 ára anal gaur svarar með fýlusvip.
"Já, bíddu, hvað ert þú að gera með þessa skýrslu?"
Ég:
"Löggan lét mig bara fá hana því þetta var að taka allt of langan tíma."
TM Anal:
"Já, ég skal koma að skoða þetta."
Ég:
"Ok."
TM Anal:
"Já okei, skil..... hvað segiru... þú vildir ekki fá hann greiddan út?"
Ég:
"Helst ekki - ekki nema ég fái eitthvað mikið fyrir hann."
TM Anal:
"Já, ég þarf bara að athuga gangverðið á þessum bílum."
Ég:
"Já, sko... þú finnur ekki E30 á bílasölum sko, þetta er svona local bíladella þannig að gangvirði þessa bíla er fremur hátt miðað við t.d. aðra bíla sem eru jafn gamlir."
TM anal:
"Já, ég þarf bara að athuga gangverðið á þessum bílum."
Ég:
"k"
-----------
Nokkrum klst síðar hringir rassaþefurinn í mig.
"Sæll, heyrðu, ég fann ekki þessa bíla á bílasölum (fucking told you so, fuckface) en ég fann týpuna fyrir ofan, og þetta er einhver svona.... 180-200kall"
Ég:
"Já okei, það kemur bara ekki til greina sko, ég vill bara fá þetta lagað"
TM anal:
"Já, það er bara ekki hægt"
Ég:
"Bíddu, er hann svona skemmdur? Hann er ekkert búinn að fara í tjónaskoðun"
TM anal:
"nei sko, ég bara sé að þetta verður dýrt....."
Ég:
"mér er sama - annaðhvort borgar þú mér tjónið eða lagar bílinn, bíllinn fer ekki á uppboð."
TM anal:
"það er ekki hægt."
Ég:
"ok bæ."
-----
Pabbi ræddi við þá.... reif kjaft við þá... kenndi þeim aðeins að reikna, snýtti þeim og hringdi í Papco í leiðinni fyrir þá.
Bíllinn fékk viðgerð og þeir einhverjum 300k fátækari.
Ég vann, þeir töpuðu.
Tilgangurinn af þessari sögu. Ekki fucking séns að labba inn á unglingsaldri og rífast við svona rassaþefi eins og þennan kauða, því miður þurfti maður að vera hallærislegur og hringja á pabba og segja honum að það væri einhver kall sem heldur að hann sé töff að vaða yfir mig.
Kv,
Haukur