by Jón Bjarni » Fri 29. Jun 2007 10:46
Jæja þetta gekk loksins að fá þennan blessaða viðauka hjá tm.
Ég áhvað að fara aðeins óhefbundnari leið til að fá þennan við auka
ég sendi fyrirspurn á Ragnheiði Dögg Gunnarsdóttur sem er Framkvæmdastjóri vátrygginga- og fjármálaþjónustu hjá tm
Það hljómaði svona:
Sæl Ragnheiður
Még langar að bera fram smá fyrirspurn um tryggingarviðauka til að geta
ekið bílnum mínum á akstursbrautinni við krýsuvík (akstursbraut.is) og á
kvartmílubrautinni hjá kvartmíluklúbbnum (kvartmila.is).
Nú hef ég verið að heyra að margir fái útgefin viðaukann til heils árs en
aðrir eins og ég fái hann ekki gefinn út fyrir 3 daga í einu. Ég fæ ekki
skilið hvers vegna það er ekki hægt að vera með eina línu í þessu. Ég fæ
alltaf sama svarið frá öllum sem ég tala við hjá ykkur og hef fengið það
síðan í janúar: það er verið að skoða þetta.
Nú finnst mér það soldið undarlegt að þið getið ekki tekið afstöðu til
þessa máls og gengið frá því þannig að einginn óvíssa ríki með þetta.
Einnig finnst mér soldið dapur af ykkur að finnast það betra að ég hringi
vikulega og bið um viðauka fyrir þessa daga sem þessar brautir eru opnar.
Eins og staðan á þeim er í dag þá er Akstursbrautinn opinn fyrir bíla á
miðvikudögum, Föstudögum og sunnudögum, Kvartmílubrautin er með opið fyrir
æfingar flesta föstudaga og er með keppnir um helgar.
Nú er ég kannski búinn að setja fram soldið marga púnkta um þetta mál
hvernig ég sé það frá mínum bæjardyrum og þætti vænt um að þú myndir
útskýra fyrir mér afhverju þetta er svona lengi í vinnslu hjá ykkur.
Með von um góð svör
Jón Bjarni Jónsson
Daginn eftir beið svar frá tm. Ragnheiður koma þessu á réttan stað og Einar Þorláksson sem sér víst um þessi mál hjá tm og hann svarar:
Sæll Jón og þakka þér fyrir fyrirspurnina.
Ég er nýtekinn við þessum málaflokki hér í TM og er sammála þér í því að
það hefur vantað skýrar línur í þessum málum. Ég er að vinna í því þessa
dagana að yfirfara öll þessi mál sambandi við akstursíþróttir, hvort sem
um tvíhjóla eða fjórhjólafarartæki sé að ræða.
Svo ég svari þér beint, þá fæ ég ekki séð neitt því til fyrirstöðu að
veita almenna áritun sem gildir fyrir þær æfingar og keppnir bifreiða sem
stundaðar eru á Kvartmílubrautinni sem og krossbrautinni. Það sem er
skilyrt nú sem áður er að um skipulagða æfingu/keppni sé að ræða og
starfsmenn staðanna sé á staðnum til að fylgjast með að öryggiskröfum sé
framfylgt. Hingað til hefur ekki verið tekið gjald fyrir þessa
viðauka/aukna áættu og liggur ekki fyrir ákvörðun um það ennþá að svo
skuli gera, amk ekki hvað varðar bílana.
Hafðu samband við mig og ég get gengið frá þessu og sent þér í pósti.
Gangi þér vel í umferðinni.
Þannig að nú er þetta komið nokkuð á hreint hvernig TM ætlar að hafa þetta.
Ég sendi honum síðan svar og bað um hanns leyfi fyrir að birta þetta og fékk jákvætt svar um það og einnig smá viðauka við fyrra svar:
Sæll aftur Jón
Meðfylgjandi eru tryggingaviðaukarnir, fyrir sitthvora brautina.
Þér er velkomið að birta svar mitt til þín inn á spjallþræðinum sem þú
nefndir.
Eins og þú hefur orðið var við hafa þessi mál verið nokkuð á reiki og við
sem störfum í tryggingageiranum höfum verið að reyna að meta hver áhættan
er af þessum æfingum /keppnum sem og hvernig þetta munstrast við þann
lagaramma sem snýr að ábyrðartryggingum ökutækja.
Þannig að nú er orðin ljós afstað TM-mann til þessara mál og ég þakka Einari kærlega fyrir svörin og leyfið til að birta þetta