gstuning wrote:
Schulii wrote:
En annars er þetta óþolandi hvað það virðist vera þetta trend að tilgreina bíltegundina þegar BMW kemur við sögu. Ég fékk nóg núna um daginn þegar einhver unglingsstrákur keyrði næstum niður lögreglumann þegar hann var að flýja af bílaplani. Þá hringdi ég á fréttastofu Rásar 2 og talaði við fréttakonu þar. Þá var ennþá í fersku minni þegar talsvert magn af fíkniefnum höfðu náðst eftir að reynt hafi verið að flytja þau inn í bensíntanki á BMW og það að sjálfsögðu alltaf tekið fram. En ég talaði sérstaklega um þetta dæmi við hana sem hafði verið í fréttum þann daginn. Þar var sagt að "ökumaðurinn hafi verið á kraftmikilli BMW-bifreið" þegar hann var nálægt því að aka niður lögreglumanninn. Ég spurði konuna hvort að, hefði hann verið á Toyotu, að þá hefði verið sagt "ökumaðurinn var á afl-lítilli Toyota bifreið"? Hún hló að þessu og sagðist skilja hvað ég ætti við. Ég bætti því við að ég væri í BMW-bílaklúbb sem væri mjög stór klúbbur og þar væru margir orðnir þreyttir á þessari tegunda tilgreiningu í fréttaflutningi. Þetta hefði án efa áhrif á ímynd bíltegundarinnar fyrir utan að það væri óskiljanlegt að þegar þessi bíltegund væri notuð í atvikum sem þessum væri það mjög oft tekið fram en aldrei annars.
Hún þakkaði bara fyrir ábendinguna.
hefðir ekki átt að segja henni frá klúbbnum ,
L2C er alltaf í fréttunum orðið,
það er stundum betra að vera bara í skugganum
Ekki eins og það skipti máli, sama hvort þetta væri harður spjallari af Kraftinum þá virðumst við alltaf eiga ALLA bílaáhugamenn á Íslandi þegar kemur að fréttaflutningi
Að hluta til skemmdaverkastarfsemi frá ónefndum klúbb hér í bæ (ekki skot á ykkur bara til að hafa það á hreinu) en á einhvern furðulegan hátt virðast ALLIR sem teknir eru vera meðlimir hjá okkur þegar þeir brjóta af sér, þess á milli eru þeir meðlimir annarsstaðar
Þetta gæti hafa verið hópur af BMWum sem allir væru harðir Kraftsmenn og það myndi engu máli skipta, þeim yrði eflaust klínt á okkur
Finnst alveg merkilegt að skv fréttaflutningi þá erum við eflaust með um 50 þús meðlimi, now top that
