Bíllinn
E34 árgerð 1990, Ekinn:158000
Byrjaði sinn feril sem eins eiganda 530i til 2002, þá breytt talsvert.
S38 mótor(3.6) og allt kram úr 1991 árg M5(veltum).
Mótor tekinn upp ásamt kassa og skipt um það sem þurfti.
Fyrrum eigandi segist hafa látið setja JimC kubb í hann
(á eftir að fá staðfest)
bremsur, rákaðir diskar framan, green stuff klossar.
Hvernig höndlar bíllinn
Bíllinn er enn mikið betri en ég, til viðbótar við M-fjöðrunina þá hefur Koni(gas) verið þröngvað undir.
Veghald er lygilegt miðað við 1530kg bíl, EN afturendinn reynir að komast frammúr strax og blýfóturinn gerir vart við sig.
Eyðsla
Einhversstaðar á bilinu 12-18 lítra á hundraðið. En við konuna segi ég að hann hangi í 10-11l.
Annars fór ég í smá trip með vini mínum á RS4, við að
reyna að hanga í sama póstnúmeri var eyðslan trúlegast nær 30l..........
Rekstur
Skipti um "slave cylinder"og rör þar frá.
K&N panelfilter.
Olíur og vökvar nýjir fyrir sumarið.
Mun setja meiri kúplingu í haust.(organic performance)
Perur, ilmspjöld
Skemmtanagildi
Éins og ég tek fram ofar þá á ég langt í land með að vera búin að fullnýta bílinn(I´m getting there) .
Þangað til þá er bíllinn sem sonur minn kýs að kalla Emmu komandi mér á óvart í hverri ferð, ég keyri b-vegina hér í kring(smálöndin) alveg grimmt og alltaf að læra eitthvað nýtt varðandi hvernig ég get nýtt mér þessa snilldarfjöðrun sem er, ætla samt að stífa hann betur að aftan.
Og kaupa stillanlega stífu að framan.
Verandi með tvö börn þá er tíminn í bílnum ekki allur í drifti og níðslu heldur er mestur tími lullandi í 2000sn/mín. með ormana gargandi afturí.
Þó að þessi bíll geti skemmt mér þá nýtist hann mér næstum jafn mikið í rólegheita snatt og sundferðir.
Tvímælalaust skemmtilegasti bíll sem ég hef átt.
Þægindi
Þegar bílnum var breytt var áherslan lögð á sem minnsta vigt, án þess þó að fórna öllum þægindum, hann er með rafmagnslaus sæti(þó með hringvermi

), rafmagn í framrúðum og topplúgu.
AC úrtekið.Enginn óþarfi....
Hversu lengi þið hafið átt bílinn
Fengum bílinn í byrjun mars.
Hvað fékk ykkur til að velja þessa týpu af BMW
Hef alltaf verið með hálfgert blæti gagnvart E34.
Vissi af þessum til sölu og fékk hann á góðu verði.
Tvímælalaust mesti bíllinn fyrir þá upphæð sem ég greiddi
Hvert er álit fólks sem þið umgangist mest á þessum bíl
Vegna þess að bíllinn er merkjalaus(bara E34 aftaná) og er ekki með M5 "kittið" eða spoilerinn lítur fólk á hann sem bara gamla fimmu, kommentar kannski helst á að ég ætti að fá nýrri fjölskyldubíl.
Álit flestra gjörbreytist þegar bílnum er sleppt upp fyrir 4000sn/mín.
Eftir það eru flestir hrifnir.
Framtíðarplön
Er nefnilega alveg klofinn í því, hluti af mér vill láta sprauta hann og halda honum svo bara eins og hann er.
Megnið af mér vill hins vegar eyða óskynsamlega miklum peningum í vélina og fá smá "FFFFFFFFFFFFFFFFftish" fyrir vikið.
Konan fer líka að heimta nýrri stationbíl sem ég glaður gef og tæti innréttinguna samdægurs úr eins og hún leggur sig, geri mér engar vonir um eitthvað ultra lightweight en 1400kg er planið.Allt þar fyrir neðan er bara bónus
