Merkilegur andskoti!

Hér skal spjalla um BMW.

Postby Gunni » Wed 16. Apr 2003 15:57

já ég tel minn tjónalausa feril líka vera ökukennaranum mínum að þakka, enda kennir hann á BMW 8)
Gunni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3939
Joined: Fri 30. Aug 2002 19:47
Location: London

Postby morgvin » Wed 16. Apr 2003 17:45

Jæja þetta bráðabyrgðar próf er rétt leið til að halda ungum ökumönnum niðri og gott er það að hafa lægri puntamörk á því heldur en fullnaðar skírteini.

En ég er nú aðalega á móti því að þetta hæfnis próf sé allavegana að borga fyrir það vegna þess að maður er nýbúinn að henda peningum í þessa oflaunuðu ökukennara sem eru með um 4000 kall á tímann þ.e.a.s. fyrir 60 mínútur ökutími er 40mín (32000kr fyrir 8 tíma vinnu við það að segja beygðu þangað og beygðu þangað ekki feitur séns að þeir borgi þetta mikið á mánuði í tryggingar og gjöld).

Svo er jú frábær hugmynd að maður ætti að fara í hæfnis próf á 10 ára fresti (En að borga fyrir það nei).

En ef þú ert gripinn við það að brjóta löginn þá áttu að vera kurteis og segja takk fyrir að viðhalda lögum og reglu og borga sektina (besta leiðin til að sleppa er að láta ekki grípa sig).

Svo er málið með hraða takmarkanir sumstaðar eru þær of lágar en annarstaðar eru þær of háar, það er á fáum stöðum þar sem að það er 15km hámarks hraði sem er mjög algengt útum allan heim þar sem krakkar eiga það til að leika sér, ég væri lítið á móti því að það væru tekin öll skillti sem stendur 30km á og breytt í 15km í staðin fyrir að hækka hraðann utan bæjar og á "hraðbrautum" upp í 120km.

Og stöðvunar skildur á að virða og hægri réttinn líka ekkert sem ég veit sem er meira pirrandi en fólk sem drepur mann næstum því vegna þess að stöðvunar skildan eða hægri rétturinn var of mikið fyrir þeirra litla heila, finnst það enþá verra en glanna skapur í umferðinni.

En hvers vega nennir lögreglan ekki að sekta fólk fyrir að gefa ekki stefnu ljós ?
91 E34 BMW 518i
Image
-Don't argue with stupid people they will only drag you down to their level and beat you with expirience.
User avatar
morgvin
Getawaybílstjóri
 
Posts: 521
Joined: Mon 09. Dec 2002 18:26
Location: Reykjavík(Selás)

Postby bebecar » Wed 16. Apr 2003 21:04

já, og hvers vegna viðgengst að fólk virði ekki hægri rétt.. aki á móti einstefnu og aki á 50 - 60 í 30 götum.

Of fáar löggur eða aðrar áherslur.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby Logi » Wed 16. Apr 2003 23:09

Gunni skrifaði þetta:
Auðvitað þarf löggan að vera með hraðan læstann inná radarinn! Ef þeir þyrftu það ekki þá gætu þeir alveg eins tekið afa gamla sem er að dúlla sér á 30 og sektað hann fyrir ofhraðan akstur og sagt að hann hafi verið á 130! Þetta nefnist sönnunargagn og þarf ávalt að vera til staðar ef á að kæra einhvern fyrir eitthvað.


Fallið hafa dómsmál þar sem lögregla sýndi ekki ökumönnum læstan hraða þegar heir voru kærðir. Ef löggurnar eru tvær í bíl að mæla þurfa þær ekki að sýna bílstjóranum hraðann, það er pottþétt.

Ég meina ef þið spáið í það hvað hafa einhverjar tvær löggur sem hafa aldrei séð mig áður að gera með að vera að ljúga um á hvaða hraða ég var. Það er ekki eins og þessir menn fái eitthvað meira borgað ef þeir sekta fleiri :roll:
2003 BMW 530i - Titan Grey Metallic
2011 Porsche Cayenne Diesel - Meteor Grey Metallic
Logi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2725
Joined: Mon 09. Dec 2002 20:32
Location: Hafnarfjörður

Postby morgvin » Thu 17. Apr 2003 04:38

fá eitthverja orðu fyrir að grípa sem flesta... það má rökræða tölurnar ef þeir sína þær ekki ef þú ert með farðega í bílnum.
Þeir þurfa að sína tölurnar alla vegana eru það svörin sem ég hef fengið frá lögreglum sem ég hef spurt.
91 E34 BMW 518i
Image
-Don't argue with stupid people they will only drag you down to their level and beat you with expirience.
User avatar
morgvin
Getawaybílstjóri
 
Posts: 521
Joined: Mon 09. Dec 2002 18:26
Location: Reykjavík(Selás)

Postby Logi » Thu 17. Apr 2003 04:54

Ég held að það séu bara svona vinnureglur hjá þeim að sýna töluna. Eins og ég benti á þá hafa fallið dómsmál þar sem menn hafa verið dæmdir til að greiða sektir þó að þeim hafi ekki verið sýnd talan!
2003 BMW 530i - Titan Grey Metallic
2011 Porsche Cayenne Diesel - Meteor Grey Metallic
Logi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2725
Joined: Mon 09. Dec 2002 20:32
Location: Hafnarfjörður

Postby Haffi » Thu 17. Apr 2003 15:55

Ég er sko ekki tjónlaus :( held stundum að ég kunni bara hreint ekkert að keira.
Fór yfir á rauðu á 90km/h á 520 bíl og klipti annan í sundur, engin meiðsli á fólki, Endaði 110m útaf veginum á hvolfi eftir nokkrar veltur á Nissan Almeru 97 ekki alvarleg meiðsli á fólki, fór á staur á 1xx nokkuð vont.

Svo hef ég mjög oft lennt í slysi með vinum í bíl þannig að ég er ekkert lukkudýr í umferðinni! :oops:
Haffi W. Schnurrenberger.
User avatar
Haffi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5729
Joined: Sat 07. Sep 2002 09:55

Postby oskard » Thu 17. Apr 2003 16:18

Ég nenni ekki að lesa þetta allt en bjahja áttaru þig á því að þú mátt
ekki fá EINN punkt þá færðu aftur tveggja ára
skírteini. Og ef þú færð síðann einn punkt í viðbót á því skírteini færðu
aftur tveggja ára skírteini. Þannig að ef þú gleymir einu sinni að fara
í belti eða hafa ljósin kveikt man ekki hvort það var þá færðu 1 punkt
og þar að leiðandi tveggja ára skírteini.

Ég er ekki að segja að tveggja ára skírteini séu óþarfi ég er algjörlega
hlyntur þeim. Ég keyrði of hratt á fyrsta skírteininu mínu og misti prófið
og fékk því aftur tveggja ára skírteini og ég er algjörlega sáttur við það
en ef að ég hefði fengið 1 punkt í síðustu tvem árum þá fegni ég aftur
tveggja ára skírteini og það er að mínu mati bara bull :evil:

Umferðalög eru til að fara eftir þeim og mér finnst það skipta máli hvort
ég sé að keyra alltof hratt þegar það eru engir í umferðini en þegar það
er háannar tími í umferð. Þegar ég var tekinn var klukkan 00:30 á
þriðjudagskvöldi og það var enginn fyrir mér sem ég hefði getað keyrt
á og ég hefði þar að leiðandi bara drepið sjálfann mig.

Ég vona bara að við fáum alvöru TRACK hérna á íslandi þá skal ég aldrei
keyra of hratt á venjulegum götum, ég lofa :wink:
oskard
 

Postby hlynurst » Thu 17. Apr 2003 19:42

oskard wrote:Ég vona bara að við fáum alvöru TRACK hérna á íslandi þá skal ég aldrei
keyra of hratt á venjulegum götum, ég lofa :wink:


Right... einhvernveginn held ég að þú sért bara að plata okkur núna. :roll:
hlynurst
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2807
Joined: Tue 03. Sep 2002 20:21
Location: Reykjavík

Postby O.Johnson » Thu 17. Apr 2003 19:53

Það fáránlegt að ekki sé búið að byggja braut hérna á Íslandi. Í danmörku eru tólf brautir og á fimm þeirra er hægt að búa til hálku, snjó og bleitu. Og við eigum svo að kallast nútíma þjóð og erum ekki einu sinni komin með eina braut :( . Þetta er furðulegt. Það er verið að hugsa um að byggja einhverja braut nálægt Njarðvík eða einhverstaðar á Reykjanesinu, en ég held að það muni ekkert verða gert í því að minsta kosti næstu tíu árin, sem er náttúrulega mjög slæmt :?
O.Johnson
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 974
Joined: Tue 15. Apr 2003 00:55

Postby hlynurst » Thu 17. Apr 2003 19:59

Ég held að allir bílaáhugamenn dreymi um svona braut. En eins og þú segir þá er hennar örugglega ekkert að vænta fyrr en eftir 10 ár! Við ættum kannski að gera þetta kosningarloforð eftir rúm 4 ár. :wink:
hlynurst
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2807
Joined: Tue 03. Sep 2002 20:21
Location: Reykjavík

Löggan

Postby Þórir » Fri 18. Apr 2003 11:39

Þar sem ég er aðeins kunnugur ætla ég að svara hérna nokkrum punktum.

Í fyrsta lagi er það er alveg klárt mál að löggunni ber engin skylda til að sýna manni hraðan sem þeir voru á en í flestum tilvikum þurfa þeir að vera tveir í lögreglubílnum.

Þá segja margir að þá geti þeir bara logið upp á mann o.s.frv.

Hver er hagur þeirra að gera það? Það munar þá nákvæmlega ekki neinu hversu marga þeir sekta eða fyrir hvað. En þá brýst alltaf fram gamla góða tröllasagan um árshátíðarsjóðinn sem er alltaf jafn gaman að hlusta á. Trúir fólk þessu virkilega ennþá? Allar sektagreiðslur ganga beint til ríkissjóðs og koma aldrei í vasa lögreglumanna né lögregluembætta.

Annað mál er þessi ótrúlega þörf manna til að koma með setninguna: tveir nýútskrifaðir..... Hvaðan kemur þetta? Er ástæðan fyrir þessu sú að það særi stoltið enn meira að vera tekinn af ungum löggum heldur en gömlum löggum? Var viðkomandi brot eitthvað smávægilegra útaf því að tvær ungar löggur sáu það?

Það er álíka vitrænt að segja þetta eins og að halda því fram að löggur sem noti gleraugu séu eitthvað smásmugulegri en hinar.

Svo að lokum er spurt hvers vegna sé ekki sektað meira fyrir stefnuljósanotkun. Hvernig haldiði að spjallþráður eins og þessi myndi líta út ef allir yrðu kærðir fyrir stefnuljósanotkun. Úfffff.

Málið er bara það að við þurfum öll að vinna að því saman að umferðin sé þolanleg að það vinnst ekki með því að keyra eins og fávitar og kenna svo löggunni um það að fá sekt. Þetta er eins barnalegt og helst er hægt að hafa það.

Kveðja.
Þórir.
User avatar
Þórir
Getawaybílstjóri
 
Posts: 597
Joined: Fri 20. Dec 2002 22:00
Location: R.vík

Postby Haffi » Fri 18. Apr 2003 11:49

*orð*
Haffi W. Schnurrenberger.
User avatar
Haffi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5729
Joined: Sat 07. Sep 2002 09:55

Postby morgvin » Fri 18. Apr 2003 17:13

Allar sektar greiðslur ganga beint í ríkissjóð....

Þarna komstu nú bara einfaldlega með svarið.
Ef þeir sekta meira o.s.frv. og þetta fer í ríkissjóð þá eru þeir að skila inn hagnaði frá sér í ríkissjóð sem veldur því að fyir hverja 30þúsund króna sekt geta þeir skrifað 30þúsund króna ávísun úr ríkissjóði.

Þannig að í umferðar átaki geta þeir verið að skila inn alveg rosalegum fúlgum, sem nýtast þeim í að kaupa allskyns búnað til löggæslu (og í árshátíðar kostnað :) ).

Auðvitað eru ungu lögreglu mennirnir strangir og eiga það til að vera of harðir vegna þess að þeir þurfa sína sig í starfi til að halda vinnuni, maður reynir nú alltaf að vera mjög duglegur fyrtu vikurnar í starfi til að yfirmennirnir líti mann jákvæðum augum.
En ekki gleyma þeir eru oft mjög sanngjarnir og eiga það til að sleppa manni fyrir hluti sem gömlu karlarnir myndu hengja mann fyrir.

En ég vill ekki vera sektaður fyrir stefnuljósa notkun heldur frekar stefnuljósa ó notkun.

Og síðan það lögreglan í kópavogi er sú allra versta þegar það kemur að lygum og prettum ég á ófáar sögurnar úr þeim bæ um lygar og skítlegt eðli, en það eru aðalega gömlu fíflin í þeim hópi.

Ég hef rætt við lögreglumann með hraða mælinn og hann sagði að þeir ættu að sína manni hraðann á mælinum.

En svo er það þannig að lögreglan getur ekki kært þig fyrir lögbrot ef það eru ekki tveir lögreglu menn viðstaddir, þeir hinsvegar meiga stoppa þig og byðja um backup og láta þig bíða þar til hinir koma og taka skírslu.
91 E34 BMW 518i
Image
-Don't argue with stupid people they will only drag you down to their level and beat you with expirience.
User avatar
morgvin
Getawaybílstjóri
 
Posts: 521
Joined: Mon 09. Dec 2002 18:26
Location: Reykjavík(Selás)

Postby Klaufi » Sat 26. Apr 2003 11:42

Ég hef tvær svolítið skemmtilegar sögur af löggum sem ég hef lent í:

1.
Þetta var þegar ég var 17 ára (3 ár síðan) og var mikill töffari, ég var með vini mínum í bíl, og sat hann í ökumannssætinu. keyrðum niður Miklubrautina og er hann stöðvaður á mældum hraða 85, hann var pirraður yfir því að vera stöðvaður á 15 kílómetrum yfir klukkustund. Vinur minn hafði haft fregnir af því að lögreglan mætti ekki setja þig í bílinn nema handtaka þig og of hraður akstur er ekki ástæða til handtöku. Hann ákvað því bara leiðinlegur við lögguna og lét hana sekta sig við sinn bíl svo að löggan stóð úti í rigningunni og skrifaði sektarrmiðan og varð öll hundblaut.

2.
Ég var tekinn fyrir of hraðan akstur en mér tókst að sannfæra lögguna um að það myndi ekki þýða fyrir þá að sekta mig því að ég myndi vinna málið. Mér hefur neflilega alltaf verið ráðlagt að skoða radarmælinn og fá að sjá hvort að það sé stimpill frá Löggildingarstofu um að þetta mælitæki sé löggilt og viðurkennt mælitæki, það má alltaf sjá þetta á viktum við kassa í stórmörkuðum og fleira í þeim dúr. Þetta merki á að vera á radarmælunum og ég bað lögregluþjóninn um að taka það fram að miðann vantaði á radarmælinn þegar hann skrifaði sektarmiðann. Hann gerði það vissulega og síðan fékk ég að fara. Núna, einu ári seinna þá hef ég ekki enn séð sektarmiða fyrir þessu broti.
Klaufi
 

PreviousNext

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 11 guests