Þið eruð svakalegir... þið eruð út um allan bæ að leita að BMW-um. Jafnvel betri í að finna bíla en hjálpasveitin að leita að fólki.
En ég sá þennan bláa sem þú varst að tala um Sæmi... mér fannst hann spennandi á þeim tíma sem hann var á sölu en mig minnir að hann hafi verið klesstur eftir að hann var keyptur. Síðan sá ég þennan rauða... hann var, og er enn vonandi, mjög fallegur. Var með flotta framsvuntu ef mig minnir rétt. Allavega flottari en þessi blái.
Hehehe, ekki málið Halli. Bara hið besta mál að fá vísbendingar.
Þennan bláa ! Ertu að tala um þennan með 3ja stafa R-númerinu? Hann var ekki á original BMW felgum ef ég man rétt. Hann var tjónaður alveg að framan þegar ég sá hann síðast.
Þessi rauði (væntanlega vínrauði sem þú meinar) er bara með venjulega 635csi framsvuntu. Seinni týpuna með þokuljósum.
Minn er með sömu týpu, en ekki með þokuljósum. Ég á hana til ef ég vil breyta. Ætli maður fái sér samt ekki M-tec svuntu í stíl við restina af kittinu. Get keypt hana úti á 200EUR.
Sexan er í grundunum man ekki hvað gatan heitir en ég var
að rúnta mér Árna í gær og við tókum myndir, hann er reyndar
að fara til útlanda seinna í dag held ég spurning hvort hann
hafi tíma til að posta þeim
verslaður í sölunefndinni fyrir mörgum mörgum árum, einn eigandi síðan, fínt kram, hefur verið í uppgerð í doldið mörg ár, kemst vonandi á götuna fyrir næstu aldamót
Ég mundi allt í einu eftir dökkblárri sexu uppí Hafnarfirði og fór að skoða hann áðan... Hann stendur fyrir utan sama hús og TB er í, fyrir utan einhverja Smurstöð. Hann er númerslaus og sjúskaður með ljósu leðri.
Þekkiði þennan bíl eitthvað?
Tony Montana - BBS LM CREW E36 M3 Coupe Daytona Violet 18" BBS LM