by Atli Camaro » Wed 07. Apr 2004 01:35
Ef þið ætlið að fara að senda fyrirspurnir fáið þá að vita hvaða efni þessi svokölluðu bætiefni eru og í hvaða hlutföllum þeim er blandað.Allt "dælu" bensín er bætiefna blandað,spurningin er hvaða efni það eru og hversu mikið.
Annað sem vert er að spá í hvort öll þessi "bætiefnabensín" séu ekki bara sölutrikk og menn telji sig finna muninn vegna þess þeir borguðu meira fyrir dropann,það er nú einhvern veginn þannig að manni finnst oft dýrari vara betri að óathuguðu máli.
Þið talið um að ykkur finnist bílarnir ykkar eyði minna á 98 oktana bensíni,mér þykir það afskaplega hæpið.98okt bensín er hefur litlu minna orkuinnihald(Kj/L) heldur en 95okt bensín,munurinn felst aðallega í blossamarkinu.Gaman væri að sjá ef menn hafa eitthverjar eyðslumælingar til að skoða.
V-power finnst mér ágætt að keyra á en það er alltof dýrt miðað við of lítinn ávinning.Einnig hef ég rifið vélar sem hafa verið keyrðar á V-power og það voru ekki hreinar vélar,þvert á móti voru þær einstaklega sótaðar,þó svo að bílarnir væru til þess búnir að keyra á 100okt bensíni.Hafa aðrir reynslu að þessu?